Fotbolti.net
12.09.26 - 16:59
Brynjar Ingi Erluson

Logi skoraði í slæmu tapi fyrir nýliðunum

Logi Tómasson skoraði frábært mark en það dugði skammt

Logi Tómasson skoraði frábært mark en það dugði skammt

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bakvörðurinn Logi Tómasson skoraði flott mark í annars 5-1 hrikalegu tapi Samsunspor gegn nýliðum Corum í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Corum vann umspilið í B-deildinni á síðustu leiktíð og hefur styrkt sig verulega, enda með moldríkan eiganda að baki. Félagið hefur meðal annars fengið Cengiz Under, Youssoufa Moukoko og Caglar Soyuncu.

Corum komst yfir áður en Logi jafnaði með frábæru skoti úr teignum. Markvörðurinn missti sjónar á boltanum og virtist aldrei eiga möguleika á að verja. Markið má sjá neðst í fréttinni.

Eftir það skoraði Corum hins vegar fjögur mörk og Samsunspor mátti sætta sig við 5-1 skell. Liðið er aðeins með fjögur stig eftir fimm leiki.

Aron Einar Gunnarsson kom inn á í hálfleik þegar Qatar SC gerði markalaust jafntefli við hans gömlu félaga í Al Arabi. Tveir liðsfélagar Arons fengu rauða spjaldið undir lokin en Qatar hélt út tveimur mönnum færri og náði í sitt annað stig á tímabilinu. Liðið er í tíunda sæti eftir fjóra leiki.

Kolbeinn Birgir Finnsson var í byrjunarliði Vålerenga í 2-0 tapi fyrir Lilleström í norsku úrvalsdeildinni, en Vålerenga er í 11. sæti með 22 stig.

Bjarki Steinn Bjarkason byrjaði hjá Sudtirol í 1-1 jafntefli við Modena í ítölsku B-deildinni. Sudtirol er í öðru sæti með átta stig eftir fjóra leiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.