Fotbolti.net
08.10.26 - 14:42
Elvar Geir Magnússon

Ceferin býður sig fram til endurkjörs hjá UEFA

Ceferin býður sig fram til endurkjörs hjá UEFA
Canon

Mynd: EPA

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, mun bjóða sig fram til fjórða kjörtímabils síns. Slóveninn tilkynnti ákvörðun sína á fundi allra 55 aðildarsambanda UEFA í Berlín.
Ceferin um Infantino: Keisarinn er nakinn
TENGT EFNI

Ceferin um Infantino: Keisarinn er nakinn

Ceferin er 58 ára og hefur verið forseti UEFA síðan 2016.

Það kemur ekki á óvart að hann sækist eftir endurkjöri og var talið enn líklegra þegar hann og UEFA hófu tilraunir sínar til að steypa Gianni Infantino, forseta FIFA, af stóli.

Ceferin hefur útilokað að bjóða sig fram gegn Infantino á þingi FIFA en er staðráðinn í að finna frambjóðanda sem fótboltaheimurinn getur sameinast um í forsetakosningunum í mars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.