06.09.26 - 12:32
Brynjar Ingi Erluson
Infantino sækist eftir endurkjöri

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gianni Infantino, forseti alþjóðafótboltasambandsins FIFA, ætlar að sækjast eftir endurkjör í mars á næsta ári en þetta staðfesti talsmaður sambandsins í dag.
Svisslendingurinn hefur verið undir mikilli pressu síðustu vikur og kallað hefur verið eftir afsögn hans vegna áforma um að selja einkafjárfestum hlut í mótum FIFA.
Áætlanirnar mættu harðri gagnrýni og UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hótaði að sniðganga öll mót á vegum FIFA.
Mörg fótboltasambönd hafa lýst yfir vantrausti á Infantino og dregið til baka stuðning sinn við endurkjör hans.
Infantino tilkynnti í apríl að hann ætlaði að sækjast eftir endurkjöri árið 2027 og hefur ekki hvikað frá þeirri ákvörðun.
„Forseti FIFA tilkynnti í apríl að hann ætlaði að sækjast eftir endurkjöri árið 2027. Auðvitað hefur ekkert breyst. Herra Infantino mun áfram sækjast eftir endurkjöri,“ sagði talsmaður FIFA.
Allt bendir til þess að Infantino fái mótframboð en þeir sem vilja bjóða sig fram gegn honum hafa frest til 18. nóvember.