Fotbolti.net
30.09.26 - 12:47
Elvar Geir Magnússon

Richards niðurbrotinn og Guardiola tjáir sig

Micah Richards fagnar marki fyrir City 2008.

Micah Richards fagnar marki fyrir City 2008.

Canon

Mynd: EPA

Micah Richards, fyrrum varnarmaður Manchester City, segist niðurbrotinn eftir að hafa lesið dóm ensku úrvalsdeildarinnar vegna fjárhagsbrota uppeldisfélags síns.

Richards var hluti af liði City sem varð Englandsmeistari 2012.
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
TENGT EFNI

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna

„Eftir að hafa lesið það sem sagt var um brot City varð ég algörlega niðurbrotinn. Ég var hjá þessu félagi frá því ég var 14 ára. Ég myndi deyja fyrir þetta félag," segir Richards í The Rest is Football hlaðvarpinu.

Þegar Richards var í unglingastarfi City bjó hann hjá fjölskyldu í nágrenninu sem hefur lengi stutt City.

„Maðurinn sem ég bjó hjá hringdi grátandi í mig að spyrja mig út í þetta mál. Ég hafði engin svör fyrir hann. Þetta er maður sem hefur verið stuðningsmaður í yfir 60 ár og öll óvissan er átakanleg. Að sjá svona fyrirsagnir um félagið sem maður elskar gerir mann sorgmæddan, leiðan og áttavilltan."

Segir eigendur City með gaslýsingu
Eigendur Manchester City halda enn fram sakleysi sínu en Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að þeir séu ekki að segja sannleikann.

„Leikmönnum var sagt að allt væri í himnalagi. Þetta er bara gaslýsing frá núverandi stjórnendum félagsins. Mér finnst að það eigi að svipta félaginu titlunum," segir Carragher.

Guardiola: Komumst í gegnum þetta saman
Pep Guardiola, sem lét af störfum sem stjóri Manchester City eftir síðasta tímabil, hefur tjáð sig á Instagram.

„Ég vil að hver einasti stuðningsmaður Manchester City um allan heim viti að ég er til staðar og hef allaf verið. Ég stend með félaginu mínu, eigandanum, stjórnarformanninum, Ferran (Soriano), leikmönnum, Enzo (Maresca) og ykkur, einsöku stuðningsmönnum," skrifaði Guardiola.

„Höfum það ljóst að við komumst í gegnum þetta saman. Ég elska ykkur öll," sagði hann og lét fylgja með blátt hjarta. Með póstinum birtir hann myndir af sér með Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni City, og fleirum.

Guardiola stýrði City til sautján stórra titla, þar á meðal sex Englandsmeistaratitla og sigurs í Meistaradeildinni, á áratug sínum hjá félaginu.


Micah Richards.

Micah Richards.

Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola.

Pep Guardiola.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.