Fotbolti.net
30.10.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson

Gylfi kveður nýliðana eftir magnaðan árangur (Staðfest)

Gylfi kveður nýliðana eftir magnaðan árangur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Gylfi Tryggvason hefur ákveðið að halda ekki áfram við stjórnvölinn hjá Grindavík/Njarðvík eftir að hafa náð frábærum árangri á tveimur árum sem aðalþjálfari liðsins.
Gylfi: Flest allir spáðu okkur lóðbeint niður
TENGT EFNI

Gylfi: Flest allir spáðu okkur lóðbeint niður

Gylfi tók við nýsameinuðu liði Grindavíkur og Njarðvíkur í nóvember 2024 og kom því beint upp úr Lengjudeildinni.

Grindavík/Njarðvík stóð sig svo frábærlega í ár og endaði óvænt í 5. sæti Bestu deildarinnar, ásamt því að fara alla leið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

„Hjartað mitt fyllist af stolti og þakklæti þegar ég hugsa um síðustu tvö ár. Það sem stendur upp úr er fólkið sem ég hef fengið að kynnast og vinna með og sú liðsheild og menning sem við byggðum saman," segir Gylfi.

„Ég vil þakka félaginu fyrir traustið sem mér var gefið. Einnig vil ég þakka öllum sem hafa komið að starfinu fyrir samstarfið. Ég óska félaginu alls hins besta í framtíðinni."

Gylfi kveður nýliðana eftir magnaðan árangur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.