08.10.26 - 23:36
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldinho sagður snúa aftur á völlinn í nóvember

Ronaldinho

Mynd: EPA

Ronaldinho

Mynd: EPA
Fyrrum fótboltamaðurinn Ronaldinho er sagður ætla að taka skóna niður úr hillunni eftir ellefu ára hlé og freista þess að skora sitt 300. mark á ferlinum.
Ronaldinho er 46 ára og var besti fótboltamaður heims á hátindi ferilsins. Hann lék síðast með Fluminense árið 2015 en nú virðist styttast í að þessi goðsögn taki skóna niður úr hillunni.
Brasilíumaðurinn keypti hlut í ítalska C-deildarfélaginu Ravenna í sumar og sagðist þá ætla að spila keppnisleik með liðinu á tímabilinu.
Samkvæmt Il Resto del Carlino er stefnan sett á endurkomu í nóvember. Hann skoraði 299 mörk á ferlinum en ætlar sér að ná í 300. markið.
Ravenna hefur enn ekki staðfest áformin en búist er við tilkynningu á næstunni. Ronaldinho á að spila nágrannaslaginn gegn Forli þann 15. nóvember og óhætt er að búast við mikilli athygli á þeim leik.