Fotbolti.net
08.10.26 - 21:47
Brynjar Ingi Erluson

Siggi Raggi ekki rætt við NSÍ - Opinn fyrir endurkomu í íslenska boltann

Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ Runavíkur í Færeyjum, segist ekki hafa rætt við félagið um framhaldið, en samningur hans rennur út eftir þetta tímabil.
Má ekki hafa æfingar á sunnudögum því þá er kirkja
TENGT EFNI

Má ekki hafa æfingar á sunnudögum því þá er kirkja

Sigurður Ragnar tók við NSÍ undir lok síðasta árs og hefur náð frábærum árangri með liðið. Það er á toppi færeysku deildarinnar með þriggja stiga forskot á KÍ þegar fjórar umferðir eru eftir og stefnir á sinn fyrsta meistaratitil í nítján ár.

Samningur Sigurðar Ragnars rennur út eftir tímabilið en viðræður um áframhaldandi samstarf eru ekki hafnar. Hann heldur öllum möguleikum opnum.

„Við höfum ekki sest niður og rætt framtíðina enn. Við viljum sjá hvernig tímabilið endar.“

„Ég veit ekki hvaða kjör verða í boði eða hvernig félagið sér framtíðina fyrir sér, þannig að það er of snemmt að segja til um það. Ég held öllum möguleikum opnum. Ég á fjölskyldu og börn sem ég þarf að hugsa um og þarf því að vita hvað tekur við. En eins og ég segi held ég öllu opnu og einbeiti mér að því að klára tímabilið vel og vonandi vinna deildina,“
sagði Sigurður Ragnar við Bolt.fo.

NSÍ hefur ekki bara verið að gera það gott í Færeyjum heldur komst liðið alla leið í 3. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar áður en það datt út fyrir Lugano eftir hörkueinvígi. Framarinn Alex Freyr Elísson er á mála hjá NSÍ en Sigurður fékk hann til félagsins frá Njarðvík í byrjun árs.

Uppfært 21:52: Sigurður Ragnar birti á Facebook uppfærslu af frétt Bolt.fo en hann sagðist opinn fyrir því að snúa aftur í íslenska boltann.

„Eins og kom fram á bolt.fo í gær og mbl.is núna þá klárast tímabilið hjá mér 31.okt og stefnan er að enda tímabilið sem meistarar. Hvort ég verði áfram þjálfari NSÍ eða ekki á eftir að koma í ljós en ég ætla að skoða þá valkosti sem munu standa mér til boða hvort sem eru á Íslandi, Færeyjum eða annars staðar erlendis. Árangur NSÍ á þessu ári hefur verið stórkostlegur og verður vonandi sá besti í nærri 70 ára sögu félagsins en eins og kom fram á bolt.fo þá hef ég saknað barnanna minna sem búa á Íslandi og ætla því að vera líka opinn fyrir þjálfarastörfum heima ef þau kunna að bjóðast,“ skrifaði Sigurður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.