Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 08. desember 2021 18:49
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Man Utd gegn Young Boys: Ellefu breytingar hjá Rangnick
Allir þeir sem spiluðu síðasta leik eru í fríi í kvöld
Allir þeir sem spiluðu síðasta leik eru í fríi í kvöld
Mynd: EPA
Ralf Rangnick, stjóri Manchester United, er búinn að tilkynna byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Young Boys í Meistaradeild Evrópu en hann skiptir út öllum leikmönnum frá síðasta leik og fá margir hvíld úr hópnum.

Allir leikmennirnir sem byrjuðu síðustu tvo leiki eru ekki í hópnum í kvöld en United er nú þegar búið að tryggja sér toppsætið í riðlinum.

Amad Diallo, Jesse Lingard, Anthony Elanga og Juan Mata eru meðal þeirra sem fá tækifærið.

Auk þeirra eru mikið af efnilegum leikmönnum á bekknum. Nemanja Matic er á miðjunni með Donny van de Beek og Mata.

Byrjunarlið Man Utd: Henderson; Wan-Bissaka, Matic, Bailly, Shaw; Lingard, van de Beek; Amad, Mata; Elanga, Greenwood.
Athugasemdir
banner