Fotbolti.net
09.01.17 - 08:10
Magnús Már Einarsson

Orri Sigurður: Fáránlega vel tekið á móti okkur

Auglýsing
Orri Sigurður Ómarsson.

Orri Sigurður Ómarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Það er tekið fáránlega vel á móti okkur hérna. Það er eins og við séum algjörar hetjur,\" segir Orri Sigurður Ómarsson en hann er í íslenska landsliðshópnum sem tekur þátt í fjögurra þjóða móti í Kína.

Orri Sigurður er einn af sex nýliðum í íslenska hópnum að þessu sinni.
„Ég stefndi að því að vera valinn í þetta eftir að U21 árs landsliðið kláraðist. Þetta kom á óvart en þetta var það sem ég stefndi að.\"

Ísland mætir Kína á morgun og leikur síðan um sæti um helgina. Er Orri bjartsýnn á að fá tækifæri í leikjnum?

„Ég vona það en ég veit það ekki. Skiljanlega notar hann leikmenn sem eru með meiri leikreynslu og hafa verið oftar í hópnum. Ef að kallið kemur þá verð ég tilbúinn,\" sagði Orri.

Óskar Örn Guðbrandsson, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, tók viðtalið en það má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.