Sá sem sér um samfélagsmiðla Stevenage var hress á meðan á leik liðsins gegn Aston Villa stóð í enska bikarnum í gær.
Hann textalýsti leiknum en á 66. mínútu var Philippe Coutinho tekinn af velli í liði Aston Villa.
Hann sýndi ekki mikið í leiknum en Luther James-Wildin varnarmaður Stevenage sá greinilega vel um hann.
„Philippe Coutinho farinn af velli. Skiptingin tók óvenju langan tíma þar sem það þurfti að moka hann upp úr rassvasanum á Luther James-Wildin," skrifaði Stevenage á Twitter en Coutinho hefur átt erfitt með að láta ljós sitt skína í mörg ár.
66' - Philippe Coutinho comes off.
— Stevenage FC ????? (@StevenageFC) January 8, 2023
The substitution took longer than usual as they had to dig him out of Luther James-Wildin's back pocket.#AVFC 1-0 #SFC
??????
Athugasemdir