Fotbolti.net
09.02.21 - 22:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Moyes: Áttum skilið að fara með þetta í vítaspyrnukeppni

David Moyes.

David Moyes.

Canon

Mynd: Getty Images

David Moyes mætti á sinn gamla heimavöll í kvöld þegar hann stýrði West Ham gegn Manchester United á Old Trafford í enska bikarnum.

West Ham varðist vel í leiknum sem fór alla leið í framlengingunni. Þar náði Man Utd að koma inn sigurmarki.
„Það er erfitt að sætta sig við þetta því leikmennirnir stóðu sig frábærlega," sagði Moyes eftir leikinn en West Ham átti aðeins þrjár marktilraunir í leiknum og fór engin þeirra á markið.

„Við misstum nokkra leikmenn út af í leiknum og það var erfitt. Mér fannst við ekki eiga skilið að tapa leiknum; við áttum skilið að fara með þetta í vítaspyrnukeppni."

„Við spiluðum ekki vel í fyrri hálfleiknum - við vitum það - en við vorum að spila gegn góðu liði sem hefur verið á flottu skriði. Í framlengingunni fengum við eitt eða tvö tækifæri. Þegar ég hugsa um þennan leik, þá mun ég ekki hugsa um markið sem við fengum á okkur, ég mun hugsa um hversu vel við spiluðum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.