Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson valdi Aron Sigurðarson í hópinn fyrir vináttuleikinn gegn Mexíkó sem fram fer ytra eftir rúmlega tvær vikur.
Aron mun hins vegar ekki fara til Mexíkó því hann hefur dregið sig úr hópnum. Aron er ekki meiddur og segir ákvörðunina ekki vera tekna vegna meiðsla. Hann vilji hins vegar ekki taka neina sénsa.
Aron mun hins vegar ekki fara til Mexíkó því hann hefur dregið sig úr hópnum. Aron er ekki meiddur og segir ákvörðunina ekki vera tekna vegna meiðsla. Hann vilji hins vegar ekki taka neina sénsa.
Aron, sem er 32 ára sóknarmaður og einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar, kom til Íslands eftir áratug í atvinnumennsku fyrir tímabilið 2024. Hann missti af fimm leikjum vegna meiðsla tímabilið 2024 og fjórum á síðasta tímabili. Aron er algjör lykilmaður hjá KR, fyrirliði liðsins og skoraði fjórtán mörk og lagði upp fimm á síðasta tímabili,
„Ég ákvað bara að taka engar sénsa með mig," segir Aron við Fótbolta.net.
„Þetta væri 14-15 tíma ferðalag daginn eftir Víkingsleikinn hjá okkur, tímamismunur og svo er æfingaferð nánast beint eftir þetta verkefni," segir Aron og vísar í Lengubikarnum gegn Víkingi sem spilaður verður 19. febrúar.
Hann á að baki átta A-landsleiki, síðustu tveir komu í janúar 2023.
Athugasemdir



