Grímsi kallaður inn fyrir Aron

Grímsi - Hallgrímur Mar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Mexíkó.
Þetta staðfestir landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson í samtali við Fótbolta.net. Hallgrímur kemur inn í hópinn fyrir Aron Sigurðarson sem dró sig úr hópnum eftir að hann var tilkynntur fyrr í dag.

TENGT EFNI
Hópurinn gegn Mexíkó - Einn úr Lengjudeildinni og einn spilar í Svíþjóð
Hallgrímur Mar hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar um árabil og fær nú tækifæri til að spila sinn fyrsta landsleik.
Hallgrímur Mar er 35 ára sóknarmaður sem skoraði 13 mörk og lagði upp fimm í Bestu deildinni í fyrra. Hann var valinn besti leikmaður KA á lokahófi félagsins.

Fyrirliði KR fer ekki með til Mexíkó.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð