Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   mán 09. febrúar 2026 13:00
Kári Snorrason
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Það endaði með því að ég vildi fara í Víking um leið og ég heyrði af því að þeir vildu fá mig.“
„Það endaði með því að ég vildi fara í Víking um leið og ég heyrði af því að þeir vildu fá mig.“
Mynd: Víkingur R.
Ármann lék á láni með Grindavík síðasta sumar.
Ármann lék á láni með Grindavík síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ármanni Ingi Finnbogason gekk í raðir Víkings í síðustu viku og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við Íslandsmeistarana. Hann var keyptur frá uppeldisfélaginu ÍA en hann lék á láni hjá Grindavík á síðasta tímabili.

Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004 og kom með beinum hætti að níu mörkum í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum á síðasta tímabili.

Hann spilaði tæpar þrjátíu mínútur með Víkingum á laugardaginn er liðið gerði jafntefli við Njarðvík. Fótbolti.net ræddi við Ármann félagaskiptin rétt fyrir helgi.

„Ég heyrði af áhuga frá Víkingi fyrir um mánuði síðan. Þú ert ekki að fara segja nei þegar Víkingur vill fá þig. Það endaði svoleiðis að ég vildi fara í Víking um leið og ég heyrði af því að þeir vildu fá mig.“

Var erfið ákvörðun að fara frá uppeldisfélaginu?
„Jú ég myndi segja það. Mér fannst eins og ég hafði ekki fengið tækifærin sem ég átti skilið síðustu þrjú árin hjá ÍA. Það gerði ákvörðunina aðeins auðveldari að fara frá ÍA í stærsta lið á Íslandi.“

Áttir þú í viðræðum við önnur lið?
„Ég ræddi við Njarðvík í desember, en mig langaði til að spila í Bestu deildinni.“

Greint hefur verið frá því að Ármann verði mögulega lánaður til Þórs út komandi tímabil. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, segir stöðuna metna á komandi vikum.

Ármann var spurður hvort að eitthvað hefði verið rætt við sig um mögulega lánsdvöl: „Nei, ekkert þannig. Ég er bara að æfa núna með Víkingi og síðan sjáum við framhaldið. Ég er bara í Víkinni núna.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner