Fyrr í dag opinberaði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson tuttugu manna landsliðshóp sem mætir Mexíkó í vináttuleik í lok mánaðar. Leikurinn er fyrir utan hefðbundinn FIFA glugga og er hópurinn því skipaður nítján leikmönnum úr Bestu deildinni.
Af því tilefni gefnu er vel við hæfi að setja saman lista af þeim leikmönnum sem mega vera hvað svekktastir að hafa ekki verið valdnir í landsliðshópinn að þessu sinni.
Af því tilefni gefnu er vel við hæfi að setja saman lista af þeim leikmönnum sem mega vera hvað svekktastir að hafa ekki verið valdnir í landsliðshópinn að þessu sinni.
Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Kjartan Kári er án efa einn sá sem getur verið hvað svekktastur. Hann hefur verið meðal allra bestu leikmanna Bestu deildarinnar undanfarin ár og vakið athygli félaga bæði í Noregi og Svíþjóð. Á síðasta tímabili skoraði hann sex mörk og lagði upp tíu til viðbótar. Eftir að Aron Sigurðarson dró sig úr hópnum jukust líkur hans á vali, en þrátt fyrir það kom kallið ekki.
Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Gísli var einn besti leikmaður deildarinnar áður en hann hélt til Svíþjóðar fyrir tímabilið 2024. Hann snýr nú heim eftir tveggja ára veru hjá Halmstad og hefur samið við Skagamenn.
Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Guðmundur hefur verið lykilmaður hjá Stjörnunni undanfarin ár og var valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Hann á að baki 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af átta með U21 liðinu.
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Yrði ein flottasta saga síðari ára að hafa komið sér frá 4. deildinni og í landsliðið á fjórum árum. Hann skoraði fjórtán mörk í 23 leikjum í deildinni í sumar, en Arnar veðjaði á aukna reynslu í valinu á Emil Atlasyni.
Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Damir, Hans Viktor og Guðmundur Kristjánsson urðu fyrir valinu í miðvörninni og því ljóst að aldur var ekki ráðandi þáttur í valinu. Hólmar, sem á að baki 19 A-landsleiki, var engu að síður skilinn eftir utan hóps.
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Bróðir hans, Haukur, fékk kallið en ekki Tryggvi. Var frábær með Völsurum á síðasta tímabili og það er góð ástæða fyrir því hvers vegna Skagamenn hafa boðið væna summu í Tryggva. Liðsfélagi hans Jónatan Ingi gerir jafnframt sterkt tilkall.
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Óskar sneri heim á síðasta ári eftir rúmlega árs dvöl í Noregi og kom ferskur inn í lið Víkings. Þrátt fyrir mikla samkeppni um kantstöður gerði hann sannarlega tilkall.
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Elías Már er annar framherji sem getur verið svekktur. Hann sneri heim úr kínversku deildinni og skrifaði undir hjá Íslandsmeisturunum rétt fyrir áramót, en fékk engu að síður ekki kallið.
Ívar Örn Árnason (KA)
Ívar var annar hafsent sem líklega var nálægt því að komast í hópinn. Að þessu sinni valdi Arnar þó aðeins einn leikmann úr herbúðum KA í hafsentinn og varð Hans Viktor Guðmundsson fyrir valinu. Sveinn Gísli Þorkelsson er sömuleiðis hafsent sem má telja sig óheppinn. Hefði Arnar ákveðið að horfa frekar til yngri manna í varnarlínunni hefði hann að öllum líkindum átt sæti í hópnum.
Valgeir Valgeirsson (Breiðablik)
Valgeir var einn af bestu mönnum Breiðabliks á síðasta tímabili og á 34 landsleiki að baki fyrir yngri landsliðin. Hefði verið góður kostur sem gæti spilað í hægri bakverði sem og á miðju.
Athugasemdir



