Fyrr í dag kynnti landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson tuttugu manna landsliðshóp sem mætir Mexíkó í lok mánaðar. Leikurinn er utan alþjóðlegs landsleikjaglugga og er hópurinn því að stærstum hluta skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni.
Leikurinn fer fram klukkan 02:00 að íslenskum tíma aðfaranótt 26. febrúar á Corregidora leikvanginum í Queretaro í Mexíkó.
Kolbeinn Þórðarson er eini leikmaðurinn í hópnum sem leikur erlendis og þá er Damir Muminovic eini leikmaðurinn sem spilar í Lengjudeildinni í hópnum.
Nokkur umræða hefur skapast um aldurssamsetningu hópsins og hvort nægilega hafi verið horft til framtíðar við valið. Arnar Gunnlaugsson segir hins vegar að valið hafi fyrst og fremst byggst á því hvaða leikmenn teljist líklegastir til að skila Íslandi góðri frammistöðu í leiknum og þar með sem bestum úrslitum.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Arnars fyrr í dag og ræddi við hann um valið á hópnum.
Leikurinn fer fram klukkan 02:00 að íslenskum tíma aðfaranótt 26. febrúar á Corregidora leikvanginum í Queretaro í Mexíkó.
Kolbeinn Þórðarson er eini leikmaðurinn í hópnum sem leikur erlendis og þá er Damir Muminovic eini leikmaðurinn sem spilar í Lengjudeildinni í hópnum.
Nokkur umræða hefur skapast um aldurssamsetningu hópsins og hvort nægilega hafi verið horft til framtíðar við valið. Arnar Gunnlaugsson segir hins vegar að valið hafi fyrst og fremst byggst á því hvaða leikmenn teljist líklegastir til að skila Íslandi góðri frammistöðu í leiknum og þar með sem bestum úrslitum.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Arnars fyrr í dag og ræddi við hann um valið á hópnum.
Hvað var horfðiru í þegar þú valdir í hópinn?
„Fyrsta hugsunin var að skoða hverja við fengjum erlendis frá. Ég skoðaði líka hvort að það væri hægt að leita í leikmenn frá U21-landsliðinu. En það var snemma ljóst að hópurinn yrði eingöngu skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni. Fyrst þetta er Besta deildin viljum við bara velja bestu leikmennina.
Eftir vonbrigði á síðasta ári, úrslitalega séð, þá erum við í þessu til þess að ná í úrslit. Við teljum þetta vera sterkasta liðið sem gefur okkur þá möguleika í þessum leik. Ég held að þetta verður gríðarlega skemmtilegur leikur fyrir Bestu deildina, þetta er gríðarlega sterkur andstæðingur.“
Skilur umræðuna um að það sé lítið horft til framtíðar
Fyrr í dag birtist pistill á Fótbolti.net þar sem Arnar var gagnrýndur fyrir að horfa lítið til framtíðar.
Þrír leikmenn í hópnum eru gjaldgengir í U21 landsliðið. Átta leikmenn eru á bilinu 25 ára (á árinu) til 30 ára (á árinu). Níu leikmenn eru svo á bilinu 32 ára (á árinu) til 37 ára (á árinu). Arnar var spurður hvað hvort að gagnrýnin ætti rétt á sér.
„Ég skil það alveg. Það voru tveir, þrír U21-árs strákar sem eru að spila úti sem við vildum hafa með. En það eru þrír ungir og sterkir strákar í þessum hóp. Í landsliðinu viltu ekki gefa mínútur. Þetta er að okkar mati 'crème de la crème'.
Það sem var gaman að sjá er að það var jafn erfitt að velja í þennan hóp og ef um venjulegan mótsleik væri að ræða. Við eigum fullt af góðum leikmönnum í Bestu deildinni. Síðan voru einhver forföll og sumir gáfu ekki kost á sér, eins og gengur og gerist. Ég er mjög ánægður með þennan hóp sem varð fyrir valinu. Góð blanda af gæðum, reynslu og ungdómi.“
Horft í reynslu í hafsentavali
Þeir Damir Muminovic, Guðmundur Kristjánsson og Hans Viktor Guðmundsson voru valdnir í hafsentastöðurnar. Hans Viktor verður þrítugur á árinu, Damir er 36 ára og mun spila í Lengjudeildinni í sumar og Guðmundur er 37 ára.
Hvers vegna voru þessir þrír valdnir fram yfir aðra?
„Fyrir utan það að Damir hefur verið einn af okkar albestu hafsentum undanfarinn áratug þá var hann stórkostlegur með Blikum fyrir korteri síðan gegn mjög sterkum andstæðingum í Sambandsdeildinni. Síðasti leikurinn var 18. desember, það var ekki langt síðan það var. Hann kemur inn með reynslu, þekkingu og gæði.
Gummi Kristjáns er bara íþróttamaður þó að hann sé gamall í tölustöfum. Hans Viktor er sterkur og líkamlegur. Hann hefði kannski átt að taka skrefið og reyna fyrir sér erlendis á einhverjum tímapunkti. Hann er í góðum klúbbi núna og stóð sig vel í Evrópuleikjunum. Þú vilt hafa massa í hjartanu á liðinu. Þeir munu koma með reynslu og munu stýra og stjórna.“
Var erfitt að reyna réttlæta val á manni sem mun spila í Lengjudeildinni á næsta tímabili?
„Nei, alls ekki. Það voru fleiri þar sem við vorum að spá í. Eiður úr Njarðvík til dæmis. Þetta eru bara topphafsentar. Eftir að það var ljóst að hann væri ekki áfram þá fékk hann hringingar úr liðum í Bestu deildinni. Það er stutt síðan að þessir Evrópuleikir voru, hann verður varla slakur leikmaður á sex vikum. Hann er með flotta holningu. Alltaf grannur og flottur, hann hefur litið vel út í þeim leikjum sem við höfum séð af honum.“
Var þetta ekki kjörið tækifæri til að blóðga unga hafsenta?
„Jú jú. Það voru strákar úr U-21 liðinu sem komust ekki. Nóel (Atli Arnórsson) og Hlynur (Freyr Karlsson) sem því miður gátu ekki komist. Þá er alltaf spurning um hversu langt er í þann sem þú ætlar að taka inn. Hvað ertu að reyna gera, ertu að reyna ná í úrslit, ertu að reyna koma fram fyrir hönd þjóðarinnar og standa þig? Þannig að þessi hópur varð fyrir valinu.
Síðan má ræða það fram og til baka hvort að það megi hafa valið einhverja aðra unga. En þetta er fín blanda. Það er líka erfitt með stöður. Það er mögulega aðeins léttara að taka yngri leikmenn sem eru fram á við heldur en akkúrat í hafsentinum. Á svona velli gegn svona þjóð verður þetta erfitt. Þú þarft ákveðna kænsku og reynslu.“
Hvers vegna fékk Kolbeinn að koma?
Kolbeinn Þórðarson er eini leikmaðurinn í hópnum sem spilar ekki á Íslandi. Hann leikur með Gautaborg í Svíþjóð, en liðið mun spila bikarleik á sama tíma og landsliðsverkefnið er.
„Þjálfararnir í Gautaborg voru mjög hrifnir af þessu. Hann er auðvitað lykilmaður í sínu liði. En þeim fannst þetta gott fyrir ferilskránna og fyrir hans prófíl. Ég fór þarna út í þar síðustu viku og hitti Kolbein og þjálfarann. Þeir voru báðir mjög spenntir fyrir þessu og ég fagna því.
En hafandi verið þjálfari félagsliðs þá sýni ég því fullan skilning að þeir vilja ekki missa menn út í óopinberan glugga. En við reyndum. Þetta er frábært tækifæri að sjá Kolbein. Hann var fyrirliði U21-landsliðsins um tíð. Það er gaman að geta 'prómóterað' leikmenn líka. Þeir leikmenn sem fara í gegnum landsliðskerfið nái alla leið í gegn.“
Mikil samkeppni á köntunum
Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, var ekki valinn í hópinn. Hann hefur verið einn af albestu leikmönnum Bestu deildarinnar undanfarin ár, aðspurður um ástæðuna segir Arnar samkeppnina á köntunum mikla.
„Af öllum þeim stöðum sem var hægt að velja var mesti lúxusinn í kant- og hálfsvæðisstöðunni. Það var mjög gaman, því ég er mjög hrifinn af kantmönnum og Kjartani. Ég þekki Birni (Snæ Ingason) vel. Hann virkar ferskur núna og var ferskur í vetur. Því miður dettur Aron Sig út úr hópnum og Hallgrímur Mar kemur í stað fyrir hann.
Mig dauðlangaði til að velja Grímsa í upprunalega hópinn - Einfaldlega því hann er stórkostlegur leikmaður. Síðan ertu með fleiri sem geta spilað þessar stöður; Ágúst Orri, talandi um Damir í Evrópukeppninni, Ágúst var mjög flottur fyrir Blikana. Síðan eru fleiri eins og Valdimar Þór, Helgi Guðjóns. Þetta var bara mikil samkeppni.“
Markmiðið að sækja úrslit
„Ég veit að síðasta ár voru mikil vonbrigði úrslitalega séð. Þegar þú spilar fyrir Íslands hönd þá í fyrsta lagi viljum við ná í úrslit. Gera það almennilega og reyna halda í eitthvað sem við vorum að reyna gera í fyrra. Ég veit að þetta verður erfitt fyrir leikmenn. Við fáum stuttan tíma, við fáum þrjá heila æfingadaga fyrir leikinn sem er samt lúxus í þessum bransa.
Það var líka hugsunin á bakvið hópinn: Hverjir þekkja kerfið, hverjir eru vanir að spila á hærra stigi og hverjir eru líklegir til að höndla álagið sem fylgir því að spila gegn Mexíkönum. Markmiðið er að ná í góð úrslit með að ná í góða frammistöðu.“
Athugasemdir




