Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. mars 2023 13:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðtal
Árni Vill: Kom ekkert á Ítalíu sem maður var tilbúinn að taka
Fékk tilboð úr stærri deildum en valdi metnaðarfullt félag í Litháen
Árni Vilhjálmsson.
Árni Vilhjálmsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni ræðir við Söru Björk, kærustu sína, eftir leik á EM síðasta sumar.
Árni ræðir við Söru Björk, kærustu sína, eftir leik á EM síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fagnar marki með Breiðabliki.
Fagnar marki með Breiðabliki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Númer 77.
Númer 77.
Mynd: Zalgiris Vilnius
Hugsaði ekki um að koma heim í Breiðablik núna.
Hugsaði ekki um að koma heim í Breiðablik núna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég og Óskar (Hrafn Þorvaldsson) eigum það gott samband að við spjöllum oft saman. Við tölum um allt í heiminum'
'Ég og Óskar (Hrafn Þorvaldsson) eigum það gott samband að við spjöllum oft saman. Við tölum um allt í heiminum'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Maður getur sagt það við barnið sitt að maður hefur skorað í sjö löndum á meðan mamma hans hefur unnið Meistaradeildina tvisvar og farið fjórum sinnum á EM'
'Maður getur sagt það við barnið sitt að maður hefur skorað í sjö löndum á meðan mamma hans hefur unnið Meistaradeildina tvisvar og farið fjórum sinnum á EM'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er félag sem hugsar svipað og ég, stefnir að sömu hlutum. Fótboltalega séð var það auðveld ákvörðun að koma hingað," segir sóknarmaðurinn Árni Vilhjálmsson í samtali við Fótbolta.net

Hann gekk í raðir Zalgiris Vilnius í Litháen fyrir stuttu en um er að ræða sigursælasta félagið í landinu. Zalgiris varð þá í fyrra fyrsta félagið í sögu Litháen til að komast í riðla í Evrópukeppni er þeir komust í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Þeir slógu út sænska félagið Malmö á leið sinni þangað.

En hvernig endaði Árni á því að fara til Litháen?

„Það var í gegnum njósnara sem var hjá mínu gamla félagi, Kolos Kovalivka í Úkraínu. Hann er tengdur þessu félagi, þjálfaranum og öðru. Hann var búinn að segja mér frá þessu fyrir nokkru síðan. Því meira sem ég skoðaði félagið og talaði við fólk hérna þá varð þetta einhvern veginn algjör 'no brainer' hjá mér að koma hingað. Þetta er stórt félag sem hefur verið í Evrópukeppnum, var í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra."

„Þegar þú ert að byrja hjá nýju félagi eru fyrstu tvær vikurnar þannig að þú ert að kynnast nýjum hlutum og þú ert að reyna að koma þér fyrir. Þetta hefur gengið þokkalega. Þetta er félag sem er með mikið af útlendingum og þeir vita hvaða ferli maður þarf að ganga í gegnum. Það hefur hjálpað mér mikið. Maður er búinn að vera hér í tvær vikur og hingað til hefur þetta verið flott," segir Árni.

Æfði með varaliði Juventus
Árni spilaði með Rodez í Frakklandi á síðustu leiktíð en yfirgaf félagið að tímabilinu loknu og fluttist búferlum til Tórínó á Ítalíu ásamt fjölskyldu sinni. Kærasta og barnsmóðir Árna er Sara Björk Gunnarsdóttir, leikjahæsta landsliðskona í Íslands, en hún gekk í raðir Juventus síðasta sumar.

Árni, sem er 28 ára gamall, hefur verið án félags síðan síðasta síðasta sumar en hefur náð að halda sér í góðu standi.

„Ég fór frá Rodez til Tórínó. Ég var í topp aðstöðu þar og fékk að æfa með varaliði Juventus á meðan ég var að finna mér félag. Þegar kom að því að þeir voru með fullan hóp þá hjálpuðu þeir mér að finna annað lið í nágrenninu. Ég fékk þá að æfa með félagi sem heitir Pro Vercelli," segir Árni.

„Ég er æfingasjúkur. Ég var mjög duglegur á milli þess sem ég var heima með fjölskyldunni. Ég vissi alltaf að ég væri að fara að finna mér nýtt félag og ég þurfti að halda mér í standi til að vera klár þegar kallið myndi koma. Þetta var eins og undirbúningstímabil."

Fyrsti kostur var að finna félag á Ítalíu
Það er ekkert leyndarmál að fyrsti kostur fyrir Árna var að finna félag á Ítalíu til að vera sem næst fjölskyldu sinni en hann og Sara eiga ungan son.

„Fyrsti kostur var að finna félag á Ítalíu, 100 prósent. Ég fer í engar felur með það. Það var alltaf ætlunin, og hugsunin - að finna eitthvað á Ítalíu og vera nálægt fjölskyldunni. En á sama tíma kom ekkert áhugavert sem maður var tilbúinn að taka."

„Maður er á þeirri línu að þú vilt halda þínum ferli gangandi, fyrir sjálfan þig og fjölskylduna. Þetta er líka spurning um fjárhagslegu hliðina. Þú ert kominn í ákveðið launaþrep og það er erfitt að fara nokkra skala niður. Maður var ekki alveg tilbúinn í það því það hefði ekki hjálpað fjölskyldunni heldur."

„Þegar öllu er á botninn hvolft þá sá maður að ef þetta var ekki félag á Ítalíu sem var í 2-3 klukkutíma akstursfjarlægð, að þá var alveg eins gott að opna dyrnar á eitthvað annað sem er lengra í burtu en með beinu flugi eins og er hérna. Það er beint flug frá Tórínó hvern einasta dag sem tekur tvo tíma. Það er góður kostur við að vera hérna. Ef sú staða kemur upp að ég þarf að skjótast heim þá er það alltaf möguleiki."

„Þegar ég get og hef tækifæri til þá mun maður ferðast á milli. Á sama tíma er deildin hérna eins og skandinavískar deildir varðandi tímasetningu. Deildin byrjaði í síðustu viku. Við spilum frá mars þangað til í nóvember. Það hittir ágætlega á að fjölskyldan er eitthvað í fríi þegar ég er að spila og hún getur komið hingað yfir sumarið. Þess á milli erum við að púsla þessu saman."

Ég er ótrúlega sáttur með þessa ákvörðun
Að finna nýtt félag tók langan tíma, en Árni segist vera mjög sáttur með ákvörðunina. Hann tók sér góðan tíma, hugsaði sig vel um og vandaði sig mikið. Hjá Zalgiris er mikill metnaður og stefnan sett á alla titla.

„Það vilja auðvitað allir taka eins gott skref og hægt er, en ég hef aldrei verið tilbúinn að taka eitthvað bara til þess að taka eitthvað. Það þarf að vera ástæða fyrir því sem maður er að gera. Maður er ekki að eyða öllum þessum tíma í æfingar og aukaæfingar bara til að hafa gaman. Ég fékk tilboð annars staðar frá hjá félögum í stærri deildum sem voru ekki með sömu hugmyndir og ég, bæði gagnvart því hvað vildu gera gagnvart mér og hvert þau stefndu. Þegar ég talaði við Zalgiris þá fannst mér þetta smella hjá okkur. Ég er ótrúlega sáttur með þessa ákvörðun."

Árni hugsaði ekki um að koma heim í Breiðablik á þessum tímapunkti.

„Ég og Óskar (Hrafn Þorvaldsson) eigum það gott samband að við spjöllum oft saman. Við tölum um allt í heiminum. Ég held að hann viti nákvæmlega hvar hann hefur mig og ég hann. Ef að ég vil koma heim þá veit hann að ég hringi og læt hann vita. Það væri fyrsta símtal," sagði Árni og bætti við:

„Mér leist betur á aðra möguleika en íslenskan fótbolta á þessum tímapunkti. Auðvitað spilaði það mikið inn í að það er aðeins flóknara að fara til Íslands þegar maður er með fjölskyldu sem býr úti. Ísland er eyja og það er erfiðara að ferðast. Það var í rauninni aldrei möguleiki út af fjölskyldunni þó ég sé hrifinn af þeirra vegferð. Breiðablik vissi það og við tókum aldrei spjallið um það."

Ekki boðlegt að tapa leik hérna
Kröfurnar eru miklar á lið Zalgiris en liðið vann deildina með miklum yfirburðum í fyrra. Stefnan er sett á að vinna alla titla í Litháen ásamt því að komast í riðla í Evrópukeppni.

„Jú, að sjálfsögðu er stefnan sett á titilinn. Hér er ekkert annað í boði en að vinna allt sem hægt er að vinna, og vinna alla leiki," segir Árni en liðið byrjaði á tapi í fyrsta deildarleiknum.

„Við töpuðum fyrsta deildarleiknum um síðustu helgi en maður sér það strax að það er ekki boðlegt að tapa leik hérna. Það er ótrúlega gaman að taka þátt í því; félag sem er með miklar kröfur og háan 'standard'. Það er ekki bara það, þeir vilja líka fara langt í Evrópukeppni og komast í riðlakeppni eins og þeir gerðu í fyrra. Þeir hafa verið að taka inn sterka leikmenn til að byggja sig upp til að komast enn lengra í Evrópu."

„Það er mikið hungur innan félagsins, það er aldrei neinn sáttur hérna. Það er mjög þroskandi umhverfi til að vera í. Zalgiris og litháískur fótbolti er á einhvern hátt sitthvor hluturinn. Þeir einbeita mikið á að ná langt í Evrópu og vera alhliða bestir í öllu í Litháen."

Árni skoraði í fyrsta leik sínum fyrir félagið þegar liðið varð meistari meistaranna í Litháen. Hann kom inn á sem varamaður og var fljótur að skora.

„Það var gott að skora í fyrsta leik. Ég bjóst alveg eins við því ef ég fengi tækifæri og færi til að þá myndi ég skora. Það skiptir ekki máli hvort það sé fyrsti, annar eða tíundi leikurinn. Maður pælir ekkert í því. Ef þú færð færi þá áttu að skora. Heppilega fékk ég færi og það var gaman að sjá hann inni. Þetta er bara fótbolti og maður verður að skora úr sínum færum."

Búinn að skora í sjö löndum
Eins og nefnt var áðan þá skoraði Árni í fyrsta leik með Zalgiris og er hann núna búinn að skora í sjö löndum á sínum atvinnumannaferli. Það er virkilega flott afrek en mörkin með Zalgiris verða örugglega fleiri á næstu mánuðum.

„Þetta er það sem maður á að gera, skora mörk. Auðvitað er þetta ákveðið afrek og maður pælir í því þegar maður er búinn með ferilinn. Maður getur sagt það við barnið sitt að maður hefur skorað í sjö löndum á meðan mamma hans hefur unnið Meistaradeildina tvisvar og farið fjórum sinnum á EM," sagði Árni að lokum en hér fyrir neðan má sjá fyrsta markið sem hann skoraði í Litháen.

Næsti leikur Zalgiris er á laugardaginn og þá er ansi líklegt að liðið komist á sigurbraut.


Athugasemdir
banner
banner