Fotbolti.net
09.04.26 - 12:18
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Laugardal

Bikardrátturinn: Stjarnan mætir KR - Heimir gegn FH

Einn Bestu deildarslagur er í 16-liða úrslitum; Stjarnan - KR.

Einn Bestu deildarslagur er í 16-liða úrslitum; Stjarnan - KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
32-liða úrslit Mjólkurbikars karla voru leikin um páskana, að einum leik undanskildum. Leik ríkjandi bikarmeistara Vestra gegn Leikni var frestað en hann verður spilaður á Ísafirði á laugardag.

Dregið var í 16-liða úrslit í dag í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.
Athyglisvert er að fimm lið úr Bestu deildinni féllu úr leik í 32-liða úrslitum; ÍBV, Þór, Fram, Keflavík og Valur.

Einn Bestu deildarslagur er í 16-liða úrslitum; Stjarnan - KR. Þá eru Heimir Guðjónsson og hans nýju lærisveinar í Fylki að fara að taka á móti hans fyrrum lærisveinum í FH.

Þessi lið mætast í 16-liða úrslitum:
Vestri/Leiknir - Grótta
Stjarnan - KR
ÍA - Grindavík
Afturelding - Njarðvík
Þróttur - Breiðablik
KA - Ægir
Fylkir - FH
HK - Víkingur

Leikirnir í 16-liða úrslitum fara fram 13. og 14. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.