Fotbolti.net
09.05.17 - 22:18
Stefnir Stefánsson

Guðný Árna: Ég vissi að ég væri að fara að skora

Auglýsing
Guðný Árna: Ég vissi að ég væri að fara að skora
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Guðný Árnadóttir leikmaður FH átti prýðisleik þegar að FH sigraði granna sína í Haukum á Schenkervellinum nú í kvöld. Guðný hélt markinu hreinu og þá skoraði hún einnig mark beint úr aukaspyrnu og var að vonum kát með dagsverkið.

„Við komum til baka í seinni hálfleik, við vorum ekki góðar í fyrri og vorum heppnar að fá mark. En í seinni náðum við að spila boltanum og vorum miklu ákveðnari\" sagði Guðný aðspurð að því hvað hefði skapað sigurinn.

„Við vorum ekki að ná að ráða nógu vel við þetta í byrjun. Svo fannst mér við komast upp á lag með það. Þær spiluðu öðruvísi en við bjuggumst við þær breyttu um taktík. Svo að við vorum ekki alveg tilbúnar í byrjun.\" sagði Guðný og vísaði þá í að Haukar spiluðu 3-5-2 en þær hafa ekki verið að spila með tvo framherja hingað til.

„Ég hef verið að fá að taka þessar aukaspyrnur það hlaut að koma að því að þetta myndi fara inn,\" sagði Guðný þegar hún var spurð út í markið sitt sem hún skoraði úr aukaspyrnu og bætti svo við „Já ég bara vissi að ég væri að fara að skora\"

FH eru nú í þriðja sæti deildarinnar eftir góða byrjun en liðið tapaði naumlega fyrir Blikum í fyrstu umferðinni en hefur nú unnið tvo leiki í röð Fylki og Hauka.

Nánar er rætt við Guðný í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.