Fotbolti.net
09.05.26 - 20:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carrick móðgaður - „Þá höfum við tapað"

Carrick móðgaður - „Þá höfum við tapað"
Canon

Mynd: EPA

Man Utd gerði markalaust jafntefli gegn Sunderland í úrvalsdeildinni í dag. Liðið gulltryggði sér Meistaradeildarsætið með sigri á erkifjendum sínum í Liverpool um síðustu helgi.

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Man Utd, var spurður að því í dag hvort leikmenn væru komnir í frí í hausnum.
England: Tvö rauð í mikilvægum sigri Bournemouth - Markalaust á leikvangi ljóssins
TENGT EFNI

England: Tvö rauð í mikilvægum sigri Bournemouth - Markalaust á leikvangi ljóssins

„Ég verð nánast móðgaður þegar fólk ásakar okkur um það. Leikmennirnir undirbjuggu sig vel fyrir leikinn, þetta var erfiður leikur og þetta er í lagi. Ef við hefðum ekki verið einbeittir hefðum við tapað leiknum í dag," sagði Carrick.

„Við tökum stiginu og það er alltaf gott að halda hreinu. Við höfum skorað mörg mörk á tímabilinu og við höfum skapað mörg færi. Þetta var einn af þessum leikjum, þetta var erfiður leikur. Þetta var nógu gott stig og við unnum næstum því í lokin."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.