Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 15:07
Brynjar Ingi Erluson
Gravenberch um baulið: Áttum þetta ekki skilið
Ryan Gravenberch
Ryan Gravenberch
Mynd: EPA
Gravenberch hrósaði Ngumoha
Gravenberch hrósaði Ngumoha
Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch var ekki ánægður með viðbrögð stuðningsmanna félagsins við frammistöðunni í 1-1 jafnteflinu gegn Chelsea á Anfield í dag.

Gravenberch skoraði fyrir Liverpool snemma leiks, en það dugði ekki til.

Hollendingurinn var nokkuð ánægður með frammistöðuna, en segir leikmenn þó vonsvikna með að hafa ekki landað sigrinum.

„Já, auðvitað erum við vonsviknir því við þurfum að deila stigunum. Við vildum öll þrjú stigin en þeir eru augljóslega með mjög gott lið þannig mér fannst þeir alveg verðskulda stig.“

„Við sköpuðum færi og Szoboszlai átti nokkur þeirra. Ef við hefðum haft smá heppni með okkur þá hefðu þau farið í netið, en það fór því miður ekki þannig og erum við svolítið vonsviknir með það,“
sagði Gravenberch.

Stuðningsmenn Liverpool bauluðu á liðið í leikslok, enda orðnir verulega þreyttir á spilamennskunni sem það hefur verið að bjóða upp á.

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá þurfum við þá með okkur í liði. Okei, við unnum ekki leikinn, en mér fannst við alla vega ekki eiga þetta skilið. Stuðningsmennirnir þurfa að standa við bakið á okkur allan leikinn því þegar þeir gerðu það í seinni hálfleiknum þá gekk pressan mjög vel. Við þurfum á þeim að halda og vonandi gera þeir þetta ekki í næstu tveimur leikjum.“

Einnig hrósaði hann hinum 17 ára gamla Rio Ngumoha sem hefur komið með ferska vinda inn í liðið. Gravenberch segir einnig mikilvægt fyrir Liverpool að klára tímabilið með sæmd.

„Það er ótrúlega gott. Hann er aðeins 17 ára gamall en við höfum öll séð hvernig hann spilar. Hann vill alltaf fara í einn á einn þegar hann er með boltann og er í raun bara algerlega stórkostlegur. Vonandi getur hann haldið áfram á sömu braut.“

„Tímabilið hefur ekki verið frábært, en það eru enn tveir leikir eftir og við verðum að vinna þá til að tryggja Meistaradeildarsætið,“
sagði Gravenberch.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner