Fotbolti.net
23.06.26 - 09:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jason Daði sterklega orðaður við Víking

Jason Daði sterklega orðaður við Víking
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jason Daði Svanþórsson hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net rætt við Víking og þykir nokkuð líklegt að hann endi í Víkinni. Jason Daði (1999) er með lausan samning og hefur verið orðaður við fleiri félög á Íslandi. Félögin sem hafa verið nefnt eru Breiðablik, KR og ÍA.

Samningur Jasonar við enska félagið Grimsby er að klárast, hann verður ekki áfram þar og er honum frjálst að ræða við önnur félög.

Hann er uppalinn í Aftureldingu en Breiðablik krækti í hann fyrir tímabilið 2021. Hann var lykilmaður í meistaraliði Breiðabliks 2022 og hjálpaði liðinu að komast í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar 2023.

Í sumarglugganum 2024 fór hann svo til Grimsby og lék í ensku D-deildinni í tvö tímabil. Fyrra tímabilið var mjög gott hjá Jasoni en það seinna litaðist af miklum meiðslum.

Jason er öflugur hægri kantmaður og er kantstaðan mögulega sú staða sem Víkingur býr yfir minnstu breiddinni í. Stígur Diljan Þórðarson glímir við flókin meiðsli og sömu sögu er að segja af Daða Berg Jónssyni. Fyrir utan þá eru Víkingar þó með Óskar Borgþórsson, sem hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar, Ármann Inga Finnbogason, Erling Agnarsson og þá hafa þeir Valdimar Þór Ingimundarson, Viktor Örlygur Andrason og Jóhannes Kristinn Bjarnason leyst hlutverk á kantinum.

Óskar (2003) hefur leikið það vel að það kæmi ekki á óvart ef erlend félög eru að fylgjast náið með honum.

Innkastið - Dalur martraðanna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.