Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 09. maí 2026 13:32
Brynjar Ingi Erluson
England: Baulað á Liverpool eftir jafntefli gegn Chelsea
Úr leiknum í dag
Úr leiknum í dag
Mynd: EPA
Gravenberch skoraði mark Liverpool
Gravenberch skoraði mark Liverpool
Mynd: EPA
Liverpool 1 - 1 Chelsea
1-0 Ryan Gravenberch ('6 )
1-1 Enzo Fernandez ('35 )

Liverpool og Chelsea skildu jöfn, 1-1, í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í dag.

Ríkjandi Englandsmeistarar Liverpool gátu ekki beðið um mikið betri byrjun á leiknum. Ryan Gravenberch skoraði með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig eftir undirbúning Rio Ngumoha.

Ungstirnið fékk boltann eftir aukaspyrnu Dominik Szoboszlai, lagði hann til hliðar á Gravenberch sem hamraði honum efst í hægra hornið.

Chelsea vann sig inn í leikinn og komu mjög sterkir í seinni hluta fyrri hálfleiksins og fengu verðskuldað jöfnunarmark á 35. mínútu er Enzo Fernandez stýrði aukaspyrnu sinni í gegnum teiginn hjá Liverpool og í fjærhornið.

Wesley Fofana reyndi við boltann í teignum en náði ekki til hans sem truflaði Giorgi Mamardashvili í markinu. Sá georgíski stóð hreyfingarlaus og horfði á boltann leka í hornið.

Chelsea sterkari aðilinn þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks og í byrjun síðari.

Cole Palmer kom boltanum í netið á 49. mínútu sem hefði verið hans fyrsta mark síðan í mars, en það var tekið af vegna rangstöðu á Marc Cucurella í aðdragandanum. Tæpt var það en Liverpool horfði á þetta sem aðvörun og kom sér aftur inn í leikinn.

Liverpool-maðurinn Curtis Jones skilaði boltanum í netið nokkrum mínútum síðar en flaggið fór á loft. Rangstaða á Cody Gakpo í aðdraganda marksins.

Áfram héldu heimamenn að pressa og átti Filip Jörgensen frábæra vörslu frá Szoboszlai. Liverpool vildi líka fá vítaspyrnu í sömu sókn þar sem boltinn virtist fara í höndina á Fofana, en ekkert dæmt.

Szoboszlai átti aðra tilraun tuttugu mínútum fyrir leikslok en skot hans hafnaði í stönginni og þá átti Virgil van Dijk skalla í slá eftir hornspyrnu.

Aftur vildi Liverpool fá hornspyrnu en Van Dijk var óánægður með takið sem Moises Caicedo var með á honum í teignum, en aftur sagði VAR nei.

Chelsea vildi vítaspyrnu á lokamínútunum er Joao Pedro féll í teignum eftir viðskipti sín við Jeremie Frimpong. Hollendingurinn flæktist aðeins í löppunum á Pedro, en hefði verið ódýrt að gefa vítaspyrnu á þetta.

Nóg af umdeildum atvikum í leiknum en ekkert sigurmark. Lokatölur 1-1 á Anfield og bauluðu stuðningsmenn Liverpool á liðið í leikslok.

Enn ein slaka frammistaðan hjá liðinu gegn Chelsea sem hafði tapað sex deildarleikjum í röð fram að þessum leik. Liverpool færist þó nær því að tryggja Meistaradeildarsætið, en það er í 4. sæti með 59 stig á meðan Chelsea er í 9. sæti með 49 stig.

Chelsea getur ekki lengur endað meðal fimm efstu og er nú eina von liðsins að Aston Villa hafni í fimmta sæti og vinni Evrópudeildina, en þá mun sjötta sætið gefa Meistaradeildarsæti.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner