Fotbolti.net
23.06.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Haaland: Frakkar munu vinna okkur og mótið

Haaland: Frakkar munu vinna okkur og mótið
Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland var mjög hreinskilinn eftir að Noregur tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum eftir sigur á Senegal í nótt.

Haaland skoraði tvennu í 3-2 sigri og er kominn með fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjunum.
Noregur mætir Frakklandi í lokaumferðinni í úrslitaleik um toppsætið í riðlinum.

„Mér er alveg sama, við erum komnir áfram. Mér er alveg sama um þann leik," sagði Haaland um leikinn gegn Frakklandi.

„Þeir munu örugglega vinna á móti okkur og þeir munu örugglega vinna allt mótið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.