Tuchel: Kane fékk færi sem hann klúðrar venjulega aldrei

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel, þjálfari Englendinga, var alls ekki ósáttur með frammistöðu sinna manna í markalausa jafnteflinu gegn Gana á heimsmeistaramótinu í kvöld, en segir að það hafi vantað aðeins meira hugrekki.

TENGT EFNI
HM: Englendingar jarðtengdir í Boston
Englendingar voru fremur slakir til að byrja með og það var ekki fyrr en í síðari hálfleik sem þeir fóru almennilega að keyra á Gana og skapa sér færi.
Varamennirnir komu með meira líf inn í leikinn og Nico O'Reilly var nálægt því að skora þegar skalli hans fór í slána. Harry Kane klúðraði síðan algjöru dauðafæri í frákastinu.
Tuchel segist ekki vera svekktur en vill sjá meira hugrekki á réttu augnablikunum.
„Ég er ekki svekktur en ég bjóst alveg við þessu og vissi að þetta yrði erfiður leikur. Gana er líkamlega sterkt lið og leikmennirnir voru algjörlega skuldbundnir verkefninu, þannig að ég verð að hrósa þeim. Það var erfitt að brjóta þá niður.“
„Þú þarft að vera þolinmóður en um leið hugrakkur á réttu augnablikunum. Við fengum bara á okkur tvö hættuleg færi.“
„Við fundum taktinn undir lok beggja hálfleikja en þreytan fór að segja til sín. Annars var ég hrifinn af viðhorfinu en stundum þarftu líka að hafa heppnina aðeins með þér.“
„Þeir vörðust nánast með tíu mönnum gegn átta. Svæðin í kringum Kane voru þröng og við hefðum getað gert ýmsa hluti betur, en það þýðir ekkert að velta því fyrir sér núna. Harry fékk færi sem hann klúðrar venjulega aldrei, en hann gerði það í dag.“
„Ég ber mikla virðingu fyrir þessum riðli. Jafnvel þriðji leikurinn gegn Panama verður erfiður; þeir voru mjög góðir gegn Gana,“ sagði Tuchel að lokum.