Mátti ekki tjá sig um atvikið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýski þjálfarinn Thomas Tuchel mátti ekki tjá sig um atvik sem átti sér stað fyrir leik Englands og Gana á heimsmeistaramótinu í kvöld.

TENGT EFNI
Sá eini sem tók ekki í höndina á Partey
Enskir fjölmiðlar höfðu fjallað mikið um það fyrir leik hvort leikmenn Englands myndu taka í höndina á miðjumanninum Thomas Partey.
Partey, sem er 33 ára gamall, hefur verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota á Englandi en hefur neitað sök. Enska fótboltasambandið setti það því í hendur leikmanna að ákveða sjálfir hvort þeir myndu taka í höndina á honum eða ekki.
Einn leikmaður Englands tók ekki í höndina á Partey. Það var bakvörðurinn Djed Spence.
Fjölmiðlar spurðu Thomas Tuchel út í atvikið eftir leik en fjölmiðlafulltrúi enska landsliðsins greip fljótt inn í og sagði að Þjóðverjinn myndi ekki svara spurningum um Partey.
Tuchel mátti ekki ræða málið sérstaklega af lagalegum ástæðum en Partey mun mæta fyrir dóm á næsta ári.
Partey var ekki með Gana í fyrsta leiknum gegn Panama í Toronto í síðustu viku þar sem honum var meinaður aðgangur að Kanada. Hann var hins vegar klár í slaginn gegn Englandi í Boston eftir að hafa fengið vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.