Fotbolti.net
Svona tók Víkingur yfir íslenskan fótbolta

23.06.26

Svona tók Víkingur yfir íslenskan fótbolta

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Árið 2009 endaði Víkingur Reykjavík í 10. sæti 1. deildar. Árið 2013 lék félagið síðast í næst efstu deild og frá 2014 til 2020 var liðið fast í neðri hluta Bestu deildarinnar. Fyrir aðeins sex árum var liðið nálægt fallsvæðinu og fáir hefðu veðjað á að von bráðar yrði Víkingur orðið valdamesta og stærsta félag íslensks fótbolta.

Í dag er staðan gjörbreytt. Víkingur hefur unnið þrjá Íslandsmeistaratitla á fimm árum, safnað bikurum, slegið út öflug lið í Evrópu og byggt upp umgjörð sem mörg félög á Íslandi líta nú til. Víkingur er nú það félag sem flest önnur félög á Íslandi horfa á sem fyrirmynd.

En svona breytingar gerast ekki af sjálfu sér. Á bak við þennan magnaða árangur leynast stórar ákvarðanir, ráðningar sem voru umdeildar á sínum tíma, heimkomur sem breyttu gangi félagsins og sterk menning sem varð til áður en bikararnir fóru að safnast í hillurnar.

Til að skilja betur hvernig Víkingur fór í að vera félag sem enginn vill mæta ræddi Fótbolti.net við þrjá menn sem hafa upplifað umbreytinguna frá ólíkum sjónarhornum. Heimi Gunnlaugsson, formann knattspyrnudeildar, Kára Árnason, fyrrverandi leikmann og núverandi yfirmann fótboltamála, og Tómas Þór Þórðarson, fjölmiðlamann og stuðningsmann sem segist hafa vitað eftir fyrsta leik Arnars Gunnlaugssonar að „hlutirnir yrðu aldrei eins“.

Saman draga þeir upp mynd af því hvernig Víkingur varð að langbesta liði landsins eins og staðan er í dag.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.