1-0 tap Ægis var niðurstaðan þegar þeir tóku á móti Gróttu á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn. Þetta var 3.umferðin í Lengjudeildinni og Ægismenn sitja sem stendur á botni deildarinnar með núll stig.
Einnig var þetta fyrsti heimaleikur Ægis á tímabilinu.
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 1 Grótta
„Þessi leikur var held ég ein af verstu frammistöðum síðan ég byrjaði að þjálfa. Þetta var svo, svo slæmt."
Segir Nenad Zivanovic eftir þriðja tapleikinn í röð.
„Fyrstu tíu mínúturnar voru "disaster", síðan kemur vítaspyrnan sem var purea víti. Seinni hálfleikurinn ekki líflegur leikur. Þannig það vantaði orku og það var mjög erfitt fyrir mig að vera á hliðarlínunni, en Grótta á þennan sigur skilinn."
Spurður hvort hann gæti tekið eitthvað jákvætt úr leiknum var ekki mikið um svör. „Ég veit ekki hvað maður getur sagt, nei. Kannski eina að við þurfum að gera allt öfugt við það sem við gerðum í dag."
Framundan hjá Ægir er heldur betur stór verkefni, leikur í Mjólkurbikarnum gegn KA á Akureyri.
„Bikarinn er ekki í forgagn hjá okkur, við getum ekki unnið hann, eða ég meina maður veit aldrei með fótbolta en þú skilur. Við ætlum ekki þangað með hvítan fána, við reynum væntanlega að vinna ef við getum. Ég mun eflaust hrista upp í liðinu, ég er kominn núna með afsökun til að bekkja allt liðið. Þeir sem verða á bekknum eiga skilið að vera á bekknum."
Eitt af leikmönnum sem Ægir ber miklar væntingar til er aðal markaskorarinn þeirra frá tímabilinu í fyrra Jordan Adeyemo.
„Hann var ekki Jordan sem við þekkjum, ég vona að hann komist í gang, hann er frábær striker, náungi og vinnur hart. í dag náði hann ekki að tengja við liðið, en hann fékk eitt færi og mörkin munu koma hjá mönnum sem koma sér í færi. Þannig ég trúi að hann muni stíga upp."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

























