Fotbolti.net
09.06.17 - 12:28
Magnús Már Einarsson

Birkir Bjarna: Spila eins lengi og ég get

Auglýsing
Birkir Bjarna: Spila eins lengi og ég get
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Birkir Bjarnason er klár í slaginn fyrir leik Íslands og Króatíu á sunnudaginn. Birkir hefur verið frá keppni vegna hnémeiðsla síðan í byrjun mars en hann hefur æft undanfarnar vikur.
„Ég hef eiginlega ekki fundið neitt til í vikunni. Ég er búinn að æfa vel og mér líður vel,\" sagði Birkir en er hann klár í 90 mínútur?

„Ég er ekki búinn að spila í þrjá mánuði og maður veit ekki hvað maður endist lengi. Ef ég spila þá spila eins lengi og ég get. Það verður að koma í ljós hvað það verður lengi.\"

Birkir er bjartsýnn á að Ísland geti unnið Króatana eftir erfitt gengi í viðureignum undanfarin ár.

„Þeir eru með gríðarlega sterkt lið. Það eru einhverjir sem verða ekki með hjá þeim en það koma góðir leikmenn inn í staðinn. Við viljum bæta upp fyrir síðustu leiki á móti þeim og vonandi getum við gert það.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.