Real Madrid hrinti af stað yfirlýsingastríði með 150 milljón evra tilboði í Julián Alvarez sem Atlético Madrid hafnaði í dag.
09.06.2026 18:05
Atlético hafnaði 150 milljónum frá Real - Vilja 500 milljónir
Real Madrid gaf út opinbera yfirlýsingu með höfnuninni og skrifaði kaldhæðinn texta með.
„Eftir að hafa skoðað tilboðið, sem var gert á grundvelli þess góða sambands sem ríkir á milli félaganna, þakkaði Atlético Madrid okkur fyrir og hafnaði því með að benda á riftunarákvæðið í samningi leikmannsins," sagði meðal annars í upprunalegri yfirlýsingu Real Madrid, en ákvæðið hljóðar upp á 500 milljónir evra.
Atlético brást ekki vel við þessari yfirlýsingu og svaraði af hörku á samfélagsmiðlinum X.
„1. Þið skáruð niður myndbandið af páfanum svo það heyrðist ekki þegar hann sagðist líka vera stuðningsmaður Atlético Madrid.
„2. Þið hafið ruglað saman siðferði og þakklæti, en svo þið séuð ekki í neinum vafa þá þökkum við ykkur ekki fyrir neitt.
„3. Við hlustum ekki á tilboð í Julián.
„4. Hvernig getum við (Madrídarliðin) ekki verið vinir þegar ykkur tekst að láta okkur hlæja meira heldur en Barcelona gerir."
Skömmu síðar birtist önnur færsla.
„Við ætlum að nýta okkar góða samband við nýja forsetann ykkar. Sjáum til hvort þið hættið að 'stela' leikmönnum úr akademíunni okkar. Takk kærlega fyrir, Real Madrid!"
???????????????????? https://t.co/AI6mbMujPj
— Atlético de Madrid (@Atleti) June 9, 2026



