Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stoltur af Kristian - „Átti stórkostlegt tímabil"
Mynd: EPA
Þeir Nökkvi Þeyr Þórisson og Kristian Nökkvi Hlynsson voru liðsfélagar seinni hluta tímabilsins 2024/25 hjá Sparta Rotterdam. Nökkvi Þeyr var keyptur frá St. Louis City í MLS-deildinni í janúar í fyrra og Kristian var á láni frá Ajax.

Kristian (2004) er sem stendur með íslenska landsliðinu í Bandaríkjunum og undirbýr sig fyrir leikinn gegn Argentínu í nótt. Hann var keyptur til Twente síðasta sumar og átti mjög gott tímabil í hollensku úrvalsdeildinni. Nökkvi var spurður út í Kristian í viðtali hér á Fótbolti.net á dögunum.

„Ég ætla ekki að segja að ég sé hissa á (góðri spilamennsku Kristians), hann var hjá okkur í sex mánuði. Hann var kannski ekki að skora mikið í byrjun tímabils, en eins og ég sagði við hann þá var hann alltaf að koma sér í stöður til þess að skora. Þegar þú ert að því þá er eiginlega bara tímaspursmál hvenær það dettur, svo byrjaði það að detta fyrir hann og þá fylgdu mörkin endalaust með í lok tímabils. Hann átti ekkert eðlilega gott tímabil, stórkostlegt, og ég er mjög stoltur af honum. Hann stóð sig mjög vel og ég er ekkert eðlilega ánægður með hann," segir Nökkvi.

Kristian, sem er sóknarsinnaður miðjumaður, skoraði tíu mörk og lagði upp fjögur fyrir Twente í hollensku úrvalsdeildinni og í bikarnum skoraði hann tvö mörk í fjórum leikjum.
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
Slapp
banner