Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 09. júlí 2021 18:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Fylkis og HK: Fimm breytingar - Þrír í banni
Þórður Gunnar byrjar
Þórður Gunnar byrjar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir og HK mætast í kvöld í elleftu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Fylkir er í 9. sæti deildarinnar með ellefu stig og HK er í 11. sæti með sex stig.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu!

Fylkir gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Val í síðasta leik. Þórður Gunnar, Unnar Steinn og Daði Ólafs koma inn í liðið fyrir þá Arnór Gauta, Jordan Brown og Torfa Tímoteus. Arnór Gauti er í leikbanni en þeir Torfi og Jordan eru á bekknum. Guðmundur Steinn Hafsteinsson er ekki í leikmannahópi Fylkis en hann er kominn með leikheimild með liðinu.

HK gerir tvær breytingar frá 2-3 tapinu gegn Breiðabliki í síðasta leik. Ólafur Örn og Jón Arnar koma inn fyrir Ásgeir Börk Ásgeirsson og Valgeir Valgeirsson en þeir taka út leikbann.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Unnar Steinn Ingvarsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
10. Orri Hrafn Kjartansson
11. Djair Parfitt-Williams
14. Þórður Gunnar Hafþórsson
22. Dagur Dan Þórhallsson
28. Helgi Valur Daníelsson

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
17. Jón Arnar Barðdal
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
28. Martin Rauschenberg
30. Stefan Alexander Ljubicic

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu!
Athugasemdir
banner
banner