Guðlaugur: Við þurfum að spýta í lófana
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er bara óánægður með okkur." sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari Þróttar eftir 5-1 tap gegn Þór í Lengjudeildinni.
Guðlaugur var ánægður með fyrri hálfleikinn hjá sínum mönnum.
„Ágætis fyrri hálfleikur en svo hentum við þessu frá okkur með því að gefa þeim víti í byrjun seinni hálfleiks og eftir það fannst mér Þórsarar taka leikinn yfir."
Guðlaugur fór yfir það með leikmönnum í hálfleik hvernig þeir ættu að loka á Þórsarana.
„Við vorum búnir að fara yfir það í hálfleiknum hvernig við ætluðum að loka á þá og skapa okkur fleiri færi líka en það fór svolítið fannst mér fyrir ofan garð og neðan eftir að við fengum þetta þriðja mark á okkur, þá fannst mér við fara út úr því skipulagi sem við ætluðum að nota."
Lítið jákvætt sem hann segist geta tekið út úr þessum leik.
„Eins og ég segi, fyrri hálfleikur var allt í lagi en seinni hálfleikurinn lélegur þannig að við þurfum að spýta í lófana."