Jón Óli: Alltof margir leikmenn í mínu liði skítlélegir í dag
Auglýsing

Jón Ólafur Daníelsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Ólafur Daníelsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV í Pepsi-deild kvenna, var ósáttur með liðið sitt í dag þrátt fyrir sigur á fallbaráttuliði HK/Víkings.
,,Já, mér fannst nú sigurinn verðskuldaður, en þetta hefði hæglega getað farið jafntefli og við vorum ekki að nýta færin okkar og þær sköpuðu oft hættu en sem betur fer náðum við að klára þetta,\" sagði Jón Óli.
,,Ég er sammála því og það sem er mjög ánægjulegt fyrir kvennafótboltann er að það er ekkert lélegt lið í deildinni. Þetta eru allt orðin hörkulið og ég held að það verði eitthvað um óvænt úrslit í seinni umferðinni og það hefðu getað orðið óvænt úrslit í dag, en sem betur ekki.\"
Jón Óli var alls ekki sáttur með leikmenn sína í dag, en hann hraunaði vel yfir þær í hálfleik.
,,Ég lét mínar stúlkur heyra það á fullorðins í hálfleik. Mér fannst alltof margir leikmenn í mínu liði skítlélegir og engan vegin tilbúnir í dag. Ég er gríðarlega óhress með nokkra leikmenn hjá mér, en af sama skapi ánægður með þennan sigur.\"
,,Ég held að Þjóðhátíð hafi ekkert með þetta mál að gera. Við erum Vestmannaeyingar og vanir að hrista af okkur Þjóðhátíð, ég held að hugarfarið var ekki nógu gott. Úr því að þetta var svona þá var ég ánægður með þetta.\"
Hann telur að Stjarnan sé þegar búiin að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
,,Það er ekkert lið að fara að ná Stjörnunni. Þær þyrftu að misstíga sig svo oft og þær gera það ekki. Annað sætið gefur ekkert Evrópusæti, en menn eru að reyna að spila upp á heiður og það reyna náttúrulega allir að ná öðru sætinu nema Stjarnan,\" sagði Jón Óli að lokum.