Fotbolti.net
09.08.17 - 22:33
Matthías Freyr Matthíasson

Guðjón Baldvins: Svona eins og Herjólfsferð eftir verslunarmannahelgi

Auglýsing
Guðjón Baldvins: Svona eins og Herjólfsferð eftir verslunarmannahelgi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var alvöru iðnaðarsigur og við þurftum að hafa fyrir þessu í dag. Við lögðum mikið á okkur í varnarvinnunni og ég held við höfum fylgt leikskipulagi þjálfarans upp á 10 og það skilaði sigrinum í dag\" sagði kátur Guðjón Baldvinsson framherji Stjörnunnar eftir góðan sigur á Blikum í kvöld.
„FH er að komast inn í baráttuna á ný og þetta er spennandi lokakafli á mótinu og við höfum sagt það áður að við þurfum að einbeita okkur að okkur og hver leikur er úrslitaleikur þannig að ef við náum að vinna þessa úrslitaleiki að þá eigum við séns á þessu\"

Guðjón skall saman við Elfar Frey í fyrri hálfleik og virtist læknir Stjörnunnar ekki ætla að hleypa honum aftur inn á völlinn.

„Þetta var svona eins og Herjólfsferð eftir verslunarmannahelgi svona í nokkrar mínútur en þetta jafnaði sig en ég held að þetta hafi verið vægur heilahristingur en ég er búinn að fara svo oft útaf meiddur þannig að það kom ekki til greina að sleppa þessum leik\"

Guðjón og Elfar voru ansi mikið að kljást í leiknum og virtist það vera álit manna að Elfar hafi verið heppinn með að fá ekki annað gult spjald í leiknum.

„Já hefði hann ekki getað fengið rautt í þessum leik? Ég held að hann viti það nú alveg sjálfur\"

Nánar er rætt við Guðjón í sjónvarpinu hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.