Fer beint til Celtic á láni
Manchester City hefur keypt ástralska leikmanninn Daniel Arzani frá Melbourne City.
Arzani er 19 ára gamall en hann var yngsti maðurinn í HM hópi Ástralíu í sumar. Hann spilaði alla þrjá leiki liðsins á mótinu í Rússlandi.
Arzani fer beint frá Manchester City til Celtic á láni út tímabilið til að fá leikreynslu.
Á síðasta tímabili var Arzani valinn besti ungi leikmaðurinn í áströlsku deildinni.
Arzani er fjölhæfur leikmaður en hann getur spilað framarlega á miðjunni og á báðum köntunum.
Smelltu hér til að sjá öll helstu tíðindin á gluggadeginum
Taktu þátt í umræðunni á Twitter með því að nota #fotboltinet
Athugasemdir