16.11.26 - 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Róaði taugar stuðningsmanna Blackburn

Andri Lucas í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas Guðjohnsen fór af velli í hálfleik þegar Ísland vann 3-0 sigur gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld.
Andri Lucas hefur verið sjóðandi heitur fyrir framan markið með bæði félagsliði sínu, Blackburn Rovers, og með íslenska landsliðinu.

Það sást á samfélagsmiðlum að stuðningsmenn Blackburn lágu á bæn að Andri myndi sleppa meiðslalaus í gegnum verkefnið með íslenska landsliðinu og höfðu margir þeirra áhyggjur þegar hann fór af velli í hálfleik. Hann var hins vegar ekki meiddur.
„Það er erfitt að vera þjálfari eða stuðningsmaður félagsliðs þegar landsleikjahlé kemur. Blackburn er kannski að senda þrjá, fjóra eða fimm leikmenn og við hjá Víkingi þekktum það líka. Á sama tíma eru Arsenal og Barcelona kannski að senda 20 leikmenn. Það getur verið erfitt fyrir þjálfara félagsliðanna þegar leikmenn þeirra koma til baka eftir landsleiki," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, á fréttamannafundi eftir leik og bætti við:
„Við tókum Andra út af frekar af varkárni."