Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. ágúst 2018 10:04
Magnús Már Einarsson
Filip Benkovic til Leicester (Staðfest)
Filip Benkovic.
Filip Benkovic.
Mynd: Getty Images
Leicester hefur keypt króatíska miðvörðinn Filip Benkovic frá Dinamo Zagreb á þrettán milljónir punda.

Hinn 21 árs gamli Benkovic skrifaði undir fimm ára samning við Leicester.

Leicester er einnig að kaupa miðvörðinn Caglar Soyuncu frá Freiburg á 19 milljónir punda.

Þrátt fyrir að vera fá liðsstyrk í vörnina þá ætlar Leicester ekki að selja Harry Maguire sem hefur verið orðaður við Manchester United.

Leicester heimsækir Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar annað kvöld.

Athugasemdir
banner
banner