Fotbolti.net
09.08.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alonso: Lavia hefur átt við andlega stíflu að stríða

Alonso: Lavia hefur átt við andlega stíflu að stríða
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, segir að Romeo Lavia, miðjumaður liðsins, eigi við andlega stíflu að stríða. Lavia spilaði allan leikinn og lagði upp í 3-0 sigri á Milan í æfingaleik í gær.

Lavia gekk til liðs við Chelsea frá Southampton árið 2023. Hann hefur komið við sögu í 43 leikjum fyrir liðið en meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn.
Hann hefur byrjað 25 leiki og alltaf verið tekinn af velli. Hann hefur alls spilað 1,858 mínútur í bláu treyjunni.

„Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd,“ sagði Alonso við Chelsea TV eftir leikinn.

„Því hann hefur átt við andlega stíflu að stríða. Hann var þreyttur, en ég sagði honum að njóta 90 mínútna. Þegar hann var búinn var hann úrvinda. Svo ég held að hann sé mjög ánægður.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.