Ari Leifs byrjaði loksins: Fyrstu níutíu í tvo og hálfan mánuð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara vel. Gott að vinna og halda hreinu" sagði Ari Leifsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir 1-0 sigur gegn Keflavík á heimavelli. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn hjá Ara sem nýlega kom til Stjörnunnar í sumarglugganum.
„Þetta er gott fyrir okkur í stöðunni sem við erum í, við þurfum að byggja ofan á þetta. Mér fannst við eiga samt mjög mikið inni í dag heldur en þetta. Þurfum að bjóða upp á meira."
„Keflvíkingarnir eru grjótharðir og þeir gefa ekkert eftir, þeir voru meira að segja farnir að pressa síðasta korterið. Það er alveg gott hrós á þá að vera einum færri."
Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn hjá Ara og hann spilaði 90 mínútur.
„Mér líður mjög vel í dag, fyrstu níutíu í tvo og hálfan mánuð, það er bara geggjað og maður þurfti að koma svona jafnt og þétt. Auðvitað hefði maður vilja koma inn í þetta á fullu en stundum þarf maður að vera skynsamur."
„Það var góður áfangi í dag að ná níutíu, gott að byggja ofan á því."
Hvað þarf Stjarnan að gera til að halda áfram að safna stigum?
„Við þurfum að tengja okkur saman bæði sóknar og varnarlega. Við höfum verið svolítið svona þegar það er ekki sjálfstraust í liðinu. Vonandi með þessum tveimur sigur leikjum í röð þá getum við byggt ofan á það, þá erum við komnir með sjálfstraust í að reyna þá hluti sem við ætlum að gera."
