Fotbolti.net
09.08.26 - 18:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Borja: Höfum trú á ferlinu

Auglýsing
Borja: Höfum trú á ferlinu
Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin
Völsungur vann frábæran sigur á HK í Lengjudeildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Borja Iglesias, þjálfara liðsins, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Völsungur 3 - 2 HK
„Ég er mjög ánægður með leikmennina. Þegar ég kom hingað var liðið bara með tvö stig en núna erum við með 14 stig. Ég er mjög ánægður, við erum að leggja hart að okkur, spilum vel og höfum trú á ferlinu," sagði Borja.

Borja hefur trú á því að liðið haldi sér uppi.

„Já ég er mjög ánægður. Það eru þrjú stig upp í Grindavík. Það vilja allir vinna, við tökum þetta skref fyrir skref og höldum í trúna og njótum, það er mikilvægt," sagði Borja.

Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði sigurmarkið.

„Hann er góð manneskja sem er mjög mikilvægt. Hann æfir alltaf vel og kennir ungu leikmönnunum. Það er mjög mikilvægt fyrir liðið, hann er stór karakter," sagði Borja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.