Fotbolti.net
09.08.26 - 20:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Akureyrarliðin á botninum - ÍBV náði í stig í Víkinni

Eyjamenn fagna fyrra marki sínu gegn Víkingum í kvöld.

Eyjamenn fagna fyrra marki sínu gegn Víkingum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórum leikjum er lokið í Bestu deildinni í kvöld. Það var dramatík þegar Víkingur fékk ÍBV í heimsókn.

Eyjamenn fengu draumabyrjun. Róbert Elis Hlynsson slapp einn í gegn og vippaði yfir Aron Snæ Friðriksson og Sesar Örn Harðarson setti boltann yfir línua og kom ÍBV yfir strax í upphafi leiks.
Víkingar tóku við sér og náðu að jafna undir lok fyrri hálfleiks þegar Daði Berg Jónsson skallaði boltann í netið. Víkingar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og Sveinn Margeir Hauksson kom liðinu yfir eftir sendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni.

Omar Sowe fékk upplagt færi til að jafna metin en skaut yfir. ÍBV fékk vítaspyrnu undir lokin þegar Sveinn Gísli Þorkelsson braut á Mattias Edeland. Vicente Valor steig á punktinn og jafnaði metin og bjargaði stigi fyrir Eyjamenn.

ÍA er komið í eftri hlutann eftir sterkan sigur á Þór á Skaganum. ÍA fékk vítaspyrnu eftir klukkutíma leik þegar Fannar Daði Malmquist Gíslason fékk boltann í höndina. Viktor Jónsson steig á punktinn og kom Skagamönnum yfir.

Markús Páll Ellertsson komst í færi til að bæta öðru markinu við en skaut beint á Aron Birki Stefánsson. Erik Tobias Sandberg bætti öðru markinu við eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik þegar Aron Birkir varði boltann fyrir fætur hans.

Þórsarar sóttu hart að marki ÍA undir lokin og Árni Marinó Einarsson varði frábærlega frá Kristófer Kristjánssyni og gestirnir áttu síðan skalla í slá strax í kjölfarið. Nær komust þeir ekki og ÍA vann frábæran sigur.

Stjarnan fékk Keflavík í heimsókn. Alpha Conteh fékk gult spjald snemma leiks fyrir að slá Örvar Eggertsson. Hann fékk síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir hálftíma leik fyrir brot á Benedikt Warén.

Bjarki Hauksson náði forystunni fyrir Stjörnunna þegar hann skoraði með föstu skoti í upphafi seinni hálfleiks. Það reyndist sigurmarkið.

KA fékk FH í heimsókn í fallbaráttuslag. Adam Ægir Pálsson fékk gott færi til að koma KA yfir en skallinn laflaus og auðveldur fyrir Jökul Andrésson.

Kjartan Kári Halldórsson fékk síðan færi en Hans Viktor Guðmundsson bjargaði á síðustu stundu. FH komst yfir þegar Ísak Óli Ólafsson kom boltanum í netið eftir hornspyrnu frá Kjartani Kára.

Hallgrímur Mar Steingrímsson var hársbreidd frá því að jafna metin þegar hann átti fast skot en boltinn fór hárfínt framhjá markinu. Jakob Héðinn Róbertsson slapp síðan í gegn en Jökull sá við honum. Nær komust KA menn ekki og FH vann og er taplaust í síðustu níu leikjum.

Víkingur er á toppnum með 45 stig, átta stigum á undan Fram. ÍA er komið í 5. sæti með 22 stig, eins og Keflavík. Stjarnan er í 7. sæti með 21 stig, ÍBV í 9. sæti með 17 stig eins og FH. KA og Þór eru í tveimur neðstu sætunum með 15 stig.

Stjarnan 1 - 0 Keflavík
1-0 Bjarki Hauksson ('49 )
Rautt spjald: Alpha Conteh, Keflavík ('34) Lestu um leikinn

Víkingur R. 2 - 2 ÍBV
0-1 Sesar Örn Harðarson ('2 )
1-1 Daði Berg Jónsson ('43 )
2-1 Sveinn Margeir Hauksson ('47 )
2-2 Vicente Rafael Valor Martínez ('89 , víti)
Lestu um leikinn

KA 0 - 1 FH
0-1 Ísak Óli Ólafsson ('71 )
Lestu um leikinn

ÍA 2 - 0 Þór
1-0 Viktor Jónsson ('28 , víti)
2-0 Erik Tobias Tangen Sandberg ('55 )
Lestu um leikinn
Besta deildin: Akureyrarliðin á botninum - ÍBV náði í stig í Víkinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Akureyrarliðin á botninum - ÍBV náði í stig í Víkinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur í kvöld.

Úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik17+829
5ÍA18-622
6Keflavík18-622
7Stjarnan18-1021
8Valur17-719
9ÍBV17-916
10KA17-1115
11Þór18-2615
12FH17-1114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.