Fotbolti.net
09.08.26 - 17:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Elfar Árni hetja Völsungs

Lengjudeildin: Elfar Árni hetja Völsungs
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Völsungur 3 - 2 HK
1-0 Tómas Bjarni Baldursson ('16 )
1-1 Arnþór Ari Atlason ('39 )
1-2 Tumi Þorvarsson ('52 )
2-2 Inigo Albizuri Arruti ('59 )
3-2 Elfar Árni Aðalsteinsson ('62 )
Lestu um leikinn
Völsungur vann sterkan endurkomusigur á HK í Lengjudeildinni í dag.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur. Tómas Bjarni Baldursson náði forystunni fyrir Völsung eftir stundafjórðung. Arnþór Ari Atlason jafnaði metin fyrir HK undir lok fyrri hálfleiksins þegar hann setti boltann í netið eftir sendingu fyrir markið frá Atla Þór Gunnarssyni.

Tumi Þorvarsson kom síðan HK yfir snemma í seinni hálfleik. Völsungur var ekki lengi að svara því Inigo Albizuri Arruti jafnaði metin þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.

Þremur mínútum síðar skoraði Elfar Árni Aðalsteinsson og kom Völsungi yfir.

Elfar Árni var nálægt því að innsigla sigurinn í blálokin en skaut í stöngina. Það kom ekki að sök þar sem Völsungur vann gríðarlega sterkan sigur.

Völsungur er í 11. sæti með 14 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. HK er í 5. sæti með 28 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.