09.08.26 - 21:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sigur í fyrsta leik Hinriks - Jafnt hjá Viðari Ara gegn Ólafi

Hinrik Harðarson

Mynd: EIK

Hinrik Harðarson

Mynd: EIK
Hinrik Harðarson gekk til liðs við Egersund í næst efstu deild í Noregi frá Odd á dögunum og spilaði sinn fyrsta leik í kvöld.
Egersund lagði Stromsgodset 2-0 en Hinrik kom inn á undir lok leiksins. Egersund er í 7. sæti með 26 stig eftir 17 umferðir.

Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal sem tapaði 2-0 gegn Bryne. Breki Baldursson var ónotaður varamaður í 2-1 tapi Asane gegn Kongsvinger. Sogndal er í 11. sæti með 18 stig en Asane er á botninum með 13 stig.
Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði HamKam og Ólafur Guðmundsson í byrjunarliði Álasund þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli í efstu deild í Noregi. Davíð Snær Jóhannsson var ekkii með Álasund. HamKam er í 8. sæti með 22 stig en Álasund er í næst neðsta sæti með 14 stig.
Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund sem vann Molde 2-1. Kristiansund er í 14. sæti með 15 stig.
Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður í 1-0 tapi Twente gegn Heerenveen í fyrstu umferð hollensku deildarinnar.
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens sem tapaði 2-0 gegn Bröndby í dönsku deildinni. Horsens er á botninum með eitt stig eftir þrjár umferðir.
Arnór Gauti Jónsson spilaði fyrri hálfleikinn í 4-1 tapi Slaven Belupo gegn Varazdin í króatísku deildinni. Belupo er án stiga eftir tvær umferðir.
Hilmir Rafn Mikaelsson var ekki með Sigma Olomouc í 2-1 sigri á Artis Brno í efstu deild í Tékklandi. Liðið er með fjögur stig í 8. sæti eftir þrjár umferðir.