Fotbolti.net
09.08.26 - 21:36
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Jón Þór hrósar Darra markverði: Öruggur í öllu

Auglýsing
Darri Bergmann Gylfason í leiknum.

Darri Bergmann Gylfason í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Góður sigur, þrjú stig og tökum það með okkur og förum í næsta verkefni" sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar eftir 1-0 sigur á Keflavík á heimavelli.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 Keflavík

Jón Þór segir að Stjarnan hafi verið óheppin að skora ekki fleiri mörk

„Já já, það myndi ég segja. Við erum einum fleiri megnið af leiknum og pínu klaufar og óheppnir að bæta ekki við mörkum. Hefði átt að vera öruggari sigur en svona er þetta stundum og tökum þessi þrjú stig og höldum áfram."

„Leikurinn byrjaði svolítið, baráttuleikur með að byrja með. Mér fannst við vera klárir í það og mæta því. Gefum fá færi á okkur, sköpum okkur helling af færum eftir að þeir missa mann út af en náðum ekki að nýta það nægilega vel, svona er það bara."

„Keflvíkingar voru gríðarlega þéttir, vinnusamir og börðust eins og ljón hérna eftir að hafa lent undir í leiknum. Það var alveg til fyrirmyndar hjá þeim og Keflvíkingar eiga góðu gengi að fagna í deildinni. Eru með sjálfstraust og það er erfitt að spila á móti þannig liði. Við vissum alveg nákvæmlega hvernig við myndum fá Keflavíkurliðið hérna."

Ari Leifsson byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna og Darri Bergmann byrjaði í staðinn fyrir Árna Snæ, sem er nýbúinn að gifta sig.

„Virkilega góðar. Darri var öruggur í öllu sem hann gerði og Ari kemur inn með presence, fín frammistaða hjá þeim."

Jón Þór hrósar Darra markverði: Öruggur í öllu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.