Fotbolti.net
09.08.26 - 10:52
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona leggur fram annað tilboð í Rodri - Romero vill fara til Arsenal

Barcelona ætlar að fá Rodri

Barcelona ætlar að fá Rodri

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Spánarmeistarar Barcelona hefur lagt fram nýtt tilboð í Rodri, fyrirliði Tottenham vill fara til Arsenal og Nottingham Forest er að kaupa miðvörð frá Sporting. Allt þetta og meira til í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Barcelona heldur áfram viðræðum við Manchester City um spænska miðjumanninn Rodri (30) og hefur lagt fram nýtt tilboð upp á 51,4 milljónir punda. (Sport)

Cristian Romero (28) vill ganga til liðs við Arsenal en Tottenham hefur engan áhuga á að selja fyrirliðann til erkifjendanna í Norður-Lundúnum. (Sun)

Romero er einnig á óskalista Barcelona sem er að lána úrúgvæska varnarmanninn Ronald Araujo (27) til Liverpool. (Mundo Deportivo)

Nottingham Forest er að ganga frá kaupum á Ousmane Diomande (22), miðverði Sporting, fyrir 34 milljónir punda. (Athletic)

Spænski framherjinn Ferran Torres (26) hefur tjáð Barcelona að hann vilji ganga til liðs við Paris Saint-Germain. Hann hefur þegar náð samkomulagi við Evrópumeistarana um kaup og kjör. (ESPN)

Everton og Crystal Palace hafa rætt möguleg skipti þar sem enski vængmaðurinn Dwight McNeil (26) færi til Palace og Brennan Johnson (25) í hina áttina. (Times)

Viðræður Tottenham og Manchester City um brasilíska vængmanninn Savinho (22) eru langt komnar. Tottenham greiðir um 60 milljónir punda fyrir leikmanninn. (Football Insider)

Aston Villa færist nær samkomulagi við Atletico Madríd um ítalska bakvörðinn Matteo Ruggeri (24). (Athletic)

Shea Charles (22), miðjumaður Southampton, gæti enn farið til Leeds ef félagið jafnar eða toppar tilboð Fulham. Lundúnafélagið hefur boðið 30 milljónir punda í norðurírska landsliðsmanninn. (Football Insider)

Þýski framherjinn Niclas Fullkrug (33) hefur náð samkomulagi við Venezia en West Ham hefur stöðvað félagaskiptin þar sem ítalska félagið vill ekki greiða uppsett verð. (Bild)

West Ham hefur á meðan náð samkomulagi við Tottenham um kaup á ísraelska vængmanninum Manor Solomon (27). (Athletic)

Fenerbahce er að ganga frá kaupum á belgíska framherjanum Romelu Lukaku (33) frá Napoli. Chelsea fær hluta af söluverðinu. (Gazzetta dello Sport)
Romero vill fara til Arsenal

Romero vill fara til Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Diomande er á leið til Forest

Diomande er á leið til Forest

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.