09.08.26 - 08:53
Elvar Geir Magnússon
Mourinho: Bernardo Silva nennti ekki að hreyfa sig í fríinu

Jose Mourinho talar hreint út.

Mynd: EPA

Bernardo Silva er kominn í Real Madrid.

Mynd: Real Madrid

Jose Mourinho talar hreint út.

Mynd: EPA
Bernardo Silva, sem kom á frjálsri sölu til Real Madrid frá Barcelona, lék sinn fyrsta leik fyrir spænska stórliðið í gær. Carlos Espi, nýjasti leikmaður Real Madrid, tryggði liðinu 2-1 sigur á Ferencvaros. Hinn 19 ára gamli Mario Rivas kom liðinu yfir.
Jose Mourinho gagnrýndi líkamlegt ástand Bernardo Silva eftir leikinn en fór þó einnig fögrum orðum um hann sem leikmann.
Jose Mourinho gagnrýndi líkamlegt ástand Bernardo Silva eftir leikinn en fór þó einnig fögrum orðum um hann sem leikmann.

TENGT EFNI
Mourinho herðir á agareglum
„Bernardo Silva er mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur. En þegar hann fer í frí þá vill hann aftengja sig frá öllu. Hann hreyfir sig ekki neitt. Líkamlegt ástand hans er því ekki nægilega gott og hann þarf að bæta það," sagði Mourinho.
„En Bernardo er stórkostlegur leikmaður sem gefur okkur mikið í uppspilinu. Hann getur spilað í þremur eða fjórum stöðum. Í leiknum sá ég að honum skorti líkamsstyrk svo ég færði hann í 'tíuna'."
Real Madrid, sem endaði tólf stigum á eftir keppinautunum í Barcelona í titilbaráttu síðasta tímabils, byrjar nýtt tímabil á útileik gegn Espanyol 22. ágúst.