Fotbolti.net
09.08.26 - 21:59
Daníel Smári Magnússon

Jói Kalli: Hann elskar að verja markið fyrir okkur

Auglýsing
Jóhannes Karl var virkilega sáttur með sigurinn í kvöld

Jóhannes Karl var virkilega sáttur með sigurinn í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Þetta var alveg hörkuleikur og kannski stjórnin sem að við vildum, eða ætluðum okkur að taka á leiknum í fyrri hálfleik var kannski ekki alveg til staðar. En það sem er náttúrulega bara ánægjulegt að sjá er hversu tilbúnir við erum í baráttuna og menn eru að njóta þess að vinna saman og verja markið sitt fyrst og fremst. Það er náttúrulega grunnurinn að þessum sigri hérna fyrst og fremst,'' sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 0-1 sigur á KA í fallbaráttuslag í Bestu-deild karla í kvöld. 

Lestu um leikinn: KA 0 - 1 FH

Jóhannes hrósaði sínum mönnum fyrir yfirvegun eftir að FH liðið komst yfir og taldi líklegt að löglegt mark hefði verið tekið af þeim sem að endanlega hefði gert út um leikinn.

„KA mennirnir voru farnir að taka mikið af sénsum og að senda marga menn fram. Mér fannst við skora 2-0 mark sem að hefði átt að fá að standa. Ég er ekki alveg búinn að sjá það aftur, en mér fannst ólíklegt að Kjartan Kári hefði verið rangstæður og það hefði náttúrulega klárað leikinn. En líka bara að sjá leikmennina sem að eru að koma inná, vinnusemina, karakterinn. Það eru allir að spá í hvað er best fyrir liðið og það gleður mig virkilega að sjá og finna það,'' sagði Jóhannes Karl.

FH liðið hefur ekki tapað deildarleik síðan 29. maí, en jafnteflin eru ansi mörg. Það er vonandi fyrir FH-inga að þessi sigur sé upphafið af sigurhrinu.

„Já, algjörlega. Á móti liði eins og KA sem að eru vel mannaðir. Við vissum að við myndum þurfa að koma hérna og passa þessa hættulegu menn sem þeir eru með og þeir geta alveg spilað fínan fótbolta. Þú mátt ekki gefa þeim tíma og geta skorað mörk og við gerðum það, héldum markinu hreinu og náðum einu mjög góðu marki. Frábær skalli hjá Ísaki Óla og hann kláraði þetta fyrir okkur.'' 

Jóhannes Karl gaf sér svo tíma í að hrósa markmanni liðsins, Jökli Andréssyni, sérstaklega fyrir góða frammistöðu að undanförnu.

„Það verður að minnast á Jökul í markinu. Hann er búinn að vera gjörsamlega frábær og hann elskar að verja markið fyrir okkur. Vörnin, miðjan, framherjarnir - við erum að gera þetta bara virkilega vel og það er það sem að halda okkur á þessari taplausu hrinu og mun verða þess valdandi að við munum vinna fleiri leiki líka,'' sagði Jóhannes Karl Guðjónsson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Jökull elskar að verja mark FH-inga, segir Jóhannes Karl

Jökull elskar að verja mark FH-inga, segir Jóhannes Karl

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.