09.08.26 - 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rodri nálgast Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er bjartsýni í herbúðum Barcelona að Rodri sé á leið til félagsins frá Man City samkvæmt heimildum TalkSPORT.
Barcelona og Man City hafa verið í viðræðum um helgina um þennan þrítuga miðjumann og hafa þær gengið vel.
Það var útlit fyrir að Rodri væri á leið til Real Madrid áður en Barcelona blandaði sér í baráttuna á dögunum. Rodri var fyrirliði Spánar þegar liðið vann HM í sumar.
Talið er að Man City vilji fá 60 milljónir punda fyrir hann.