Fotbolti.net
09.08.26 - 21:43
Daníel Smári Magnússon

Haddi: Margt sem er bara eitthvað bull

Auglýsing
Hallgrímur segir að sínir menn muni snúa gengi liðsins við

Hallgrímur segir að sínir menn muni snúa gengi liðsins við

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Þetta er bara erfitt tap. Mér fannst frammistaðan fín, bara jafn leikur og tölfræðin styður það. En við því miður bara náum ekki að skora. Grímsi fær dauðafæri í fyrri hálfleik, svo sleppur Jakob Héðinn einn í gegn og markmaðurinn þeirra ver, svo held ég að Adam eigi góðan séns á að skora. Þannig að við fáum færin, en því miður fer boltinn ekki inn og það hefur ekki gerst síðustu þrjá leiki. Svo er bara sárt að fá á sig mark úr horni, við vissum hvað þeir myndu gera í hornum og búnir að undirbúa okkur vel en þarna vorum við búnir að gera smá skiptingar. Leikmenn, eins og Biggi, sem eru sterkir í föstum leikatriðum komnir útaf og því miður þá bara skora þeir bara á nærsvæðinu, þar sem að þeir eru sterkir,'' sagði svekktur Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 0-1 tap á heimavelli í fallbaráttuslag gegn FH í kvöld.

Lestu um leikinn: KA 0 - 1 FH

Upp spratt nokkuð eldfim umræða inni í Facebook hóp KA fólks, þar sem að slakt gengi liðsins var rætt og ásakanir um meðvirkni og ritskoðanir voru látnar flakka. Hallgrímur var spurður út í það hvort að hann hefði orðið var við ólgu í stuðningsfólki KA.

„Mér finnst ekki ólga í stuðningsmönnum hérna. Það eru allir "on board", en eitthvað á netinu sem að ég hef reyndar ekki lesið. En ég skil vel að aðdáendur KA séu ekki sáttir. Ég er heldur ekki sáttur. Við viljum vera ofar, við viljum gera betur. Við erum búnir að lenda í rosalega miklum meiðslum, erum að yngja liðið og það er erfitt núna. Þannig að ég sýni stuðningsmönnum KA, sem eru pirraðir, fullan skilning,'' sagði Hallgrímur og hélt svo áfram.

„En það eru allir að leggja sig fram. Og eina sem ég get sagt er að ég legg mig 110% fram, mig langar jafnmikið og þeim að hlutirnir fari að ganga betur. Og við vinnum hörðum höndum að því. Nú þurfum við bara að halda haus og við munum setjast niður og ræða saman strákarnir og eins og ég segi, þetta þarf að fara að snúast.''

Orðrómar herma að Danijel Dejan Djuric sé mögulega ósáttur í herbúðum KA og vilji fara. Hvernig blasir sú gróusaga við Hallgrími?

„Að mér vitandi er hann bara ánægður í herbúðum KA. Hann hefur verið að vinna í sínum málum og við tölum mikið saman. Og hann hefur alltaf verið kurteis og ekkert vesen, þannig að nei, hann hefur ekki sagt eitt neikvætt orð við mig allavega. Fólk svo mikið tala um hann allan tímann, ég er með 25 leikmenn í hópnum. Ég hef allavega ekki séð nein þess merki (að hann vilji fara) og ég veit að margt sem er í gangi er bara eitthvað bull sem að fólk er að segja. En ég get bara fókusað á það sem að við erum að gera og eins og ég segi, við þurfum að fara að vinna fótboltaleiki. Ég skil fullkomlega fólk í KA sem er ekki sátt og svo er bara spurningin hvernig við komum okkur útúr því. Ætlum við að vera hluti af lausninni og gera eitthvað í því, eða ætlum við bara að tuða yfir því? Ég er allavega tilbúinn að leggja mig fram og við munum snúa þessu við,'' sagði Hallgrímur Jónasson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Hallgrímur segir Danijel Djuric ánægðan í herbúðum KA

Hallgrímur segir Danijel Djuric ánægðan í herbúðum KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.